Borgir fasteignasala kynnir eignina Kílhraunsvegur 3, 804 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 251-9044 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Kílhraunsvegur 3 er skráð sem hér segir, birt stærð 83.0 fm. Lóðin er 9.239fm.
Nánari upplýsingar veita
Bjarklind Þór lgf, í síma 6905123, tölvupóstur Bjarklind@borgir.is
Jóhanna M Jóhannsdóttir lgf, í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is. Um er að ræða 0,9 hektara eignaland sem búið er að steypa grunn að 83fm frístundarhúsi. Búið er að teikna upp húsið og fylgja þær teikningar með, einnig er búið að jafna lóðina og undirbúa hana fyrir framkvæmdir. Lóðin er hornlóð. Kílhraunsvegur 3 er í um 75 km frá Reykjavík og um 15 mínútur frá Selfossi. Hægt er að vera með lögheimilisskráningu á lóðinni. Á deiliskipulagi er gert ráð fyrir lágreistri byggð á 1-2 hæðum með nýtingarhlutfall uppá 0,005 og því byggingarréttur á lóðinni um 462fm, sem nýta má undir frístundarhús og aukabyggingar t.d gesthús eða bílskúr. Búið er að greiða fyrir öll tengigjöldfyrir heitt- , kalt vatn og ljósleiðara.
Umhverfi:
Selfoss, Flúðir, Laugarás, Hella og Hvolsvöllur allt í þægilegri akstursfjarlægð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 mvsk.