Kerhraun C 82, Grímsnes-og Grafningshreppi.Fasteignaland kynnir: Sumarhús í landi Kerhrauns í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um er ræða 64,1 fm sumarhús ásamt ca. 6 fm geymslu. Á sólpalli er glerhýsi ca. 13 fm auk glerhýsi ca. 10 fm yfir heitum potti. Á lóðinni er lítið dúkkuhús. Lóðin er eignarlóð (endalóð) 5.034 fm og búið að planta talsvert af trjágróðri. Varmadæla loft í loft er í þessu húsið auk þess eru rafmagnsofnar. Varmaskiptir (gegnumsteymisbúnaður) sem nýttur er fyrir neysluna í húsinu og heitapottinn. Möguleiki er að taka inn hitaveitu en hún er við lóðarmörk.
Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Tvö herbergi með parketi á gólfi, annað með góðu skápaplássi. Baðherbergi með flísum á gólfi, fallegri innréttingu og sturtuklefa. Stofa með parketi á gólfi, góðri lofthæð og útgengið út á suður sólpall. Eldhús með parketi á gólfi, fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.
Milliloft: Stórt milliloft, manngengt með parketi á gólfi og opnanlegu fagi. Undir súð er lítil geymsla
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu að hluta.
Lítið dúkkuhús er á lóðinni.
Glerhýsi 1: Nýtt sem sólstofa, stærð ca. 13 fm.
Glerhýsi 2: Yfirbyggt yfir heitan pott, stærð ca. 10 fm.
Geymsla: Ca. 6 fm nýtt fyrir garðáhöld.
Tengi, hleðslustöð fyrir bíl.
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Þetta er falleg og vel um gengin eign á vinsælu svæði í Grímsnesi.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is