Eignamiðlun kynnir:Eignamiðlun kynnir nýja eign í einkasölu; Kelduhvammur 13 er staðsteypt tvíbýlishús með bílskúr byggt árið 1983. Eignin er skráð 139,2 fm. skv. fasteignaskrá Þjóðskrár, íbúðin sjálf 110,5 fm, og bílskúr 28,7 fm..Um er að ræða vel skipulagða, neðri hæð í húsinu með sérinngangi, tve... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Eignamiðlun kynnir nýja eign í einkasölu; Kelduhvammur 13 er staðsteypt tvíbýlishús með bílskúr byggt árið 1983. Eignin er skráð 139,2 fm. skv. fasteignaskrá Þjóðskrár, íbúðin sjálf 110,5 fm, og bílskúr 28,7 fm..Um er að ræða vel skipulagða, neðri hæð í húsinu með sérinngangi, tvennum svölum/veröndum, 3 svefnherbergjum, 2 stofum, eldhúsi, þvottahúsi, forstofu og opnu holi, ásamt bílskúr með gryfju og sameiginlegri geymslu/lagnarými.Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, löggiltur fasteignasali í síma: 777-2882 Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með fatahengi, þaðan er hurð inn í eitt barnaherbergið.Komið er inn í opið hol sem opnast annarsvegar inn á svefnherbergisgang og hinsvegar inn í stofur og eldhúsrými.Holið sjálft er rúmgott og býður upp á ýmsa möguleika en í dag er þar píanó og aðstaða til að spila. Stigið er niður þrep í setustofuna og lofthæð þar töluverð (ca 270 cm) sem gefur aukna rýmis tilfininngu.Stofur eru í dag tvær, rúmgóð setustofa með góðum gluggum og hurð út á verönd og garðinn mót suðri, og hinsvegar sjónvarpsstofa sem einnig hefur aðgengi að verönd (mót austri) sem er hentug fyrir grillið. Stofurnar eru í dag aðskildar með léttum hilluvegg sem mætti hvort sem er opna alveg eða loka og fá þannig fjórða svefnherbergið.Eldhús er með eldri innréttingu, gluggum á tvo vegu og borðkrók. Næst eldhúsinu er þvottahúsið, flísalagt með glugga með opnanlegu fagi. Léttur veggur er milli eldhúss og þvottahúss sem býður upp á möguleika.Á svefnherbergisgangi er vinnuaðstöða, þaðan er gengið inn í barnaherbergi, opnað hefur verið á milli herbergjanna tveggja en einfalt er að loka aftur og nýta sem 2 aðskilin herbergi.Hjónaherbergi er innst á gangi með góðum fataskápum.Baðherbergi er flísalagt með sturtuvegg, hvítri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi.Íbúðin er vel skipulögð og býður upp á ýmsa möguleika m.a. með fjölgun svefnherbergja eða frekari opnun milli rýma.Bílskúrinn er sjálfstætt standandi, þar er heitt og kalt vatn/ rafmagn, gluggar og góð gönguhurð. Undir hluta bílskúrsins er gryfja sem notuð er sem geymsla.Húsið er í góðu ástandi að utan, nýlega málað og múrverk yfirfarið, þak yfirfarið og málað fyrir fáum árum.Garðurinn er fallegur og vel hirtur, afar skjólsæll og sólríkur á góðum dögum. Þetta er vel skipulögð og falleg sérhæð í grónu umhverfi þar sem stutt er í verslun, sundlaug og þjónustu.Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, lögg.fasteignasali í síma 777-2882 eða Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook