Borg fasteignasala kynnir einbýlishúsið
Kastalagerði 6, sem er glæsilegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum á eftirsóttum stað í fjölskylduvænu hverfi í Kópavogi.
Um er að ræða bjarta og vel hannaða eign. Húsið stendur á góðri lóð, með skjólgóðum garði sem snýr til suðurs. Stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og útivistarsvæði.
Aðalhæð/efri hæðGengið er inn að norðanverðu og þaðan upp stiga á efri hæð. Þegar upp er komið tekur við rúmgóður gangur sem tengir saman helstu rými hæðarinnar.
Á hæðinni eru
þrjú svefnherbergi, þar af veglegt hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Eldhúsið er rúmgott og búið vönduðum eldri (retró)-innréttingum sem gefa rýminu einstakan sjarma. Þar er gott vinnupláss, mikið skápapláss og notalegur borðkrókur. Dúkur á gólfi.
Stofa/borðstofa mynda bjart og opið alrými með stórum gluggum. Frá stofunni er útgengt á
suður sólríkar svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi er, búið salerni, baðkari, vask og vaskinnréttingu. Flísar á veggjum og gólfi.
Neðri hæð/Auka íbúðÁ neðri hæð er um 66 fm tveggja herbergja íbúð sem nýtist vel sem útleigueining. Íbúðin er björt og vel skipulögð.
Eldhúsið er með upprunalegum og vönduðum eldri innréttingum.
Stofan er björt en þaðan er útgengt út í garð sem skapar skemmtilega tengingu við garðinn.
Baðherbergi er búið salerni, baðkari, vask og vaskinnréttingu.
Þvottaðstaða/þvottahús sem er í inntaksrými, er sameiginlegt fyrir báðar íbúðir.
BílskúrBílskúr er skráður um 25fm þar er góð vinnuaðstaða. Fyrir utan bílskúr er pláss fyrir tvo til þrjá bíla.
Að utan lítur húsið vel út en húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Um er að ræða vel umgengna eign sem ber eigendum sínum gott vitni.Garður er stór og gróskumikill.
Nánari upplýsingar veitir
Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.