Eignamiðlun kynnir:LAUS STRAX! Sérlega falleg og vel skipulögð fjögra herbergja íbúð á annarri hæð á besta stað í Vesturbænum, mikið endurnýjuð með afar smekklegum hætti. Í nýjum eignaskiptasamningi er íbúðin skráð sem eign 0203, birt stærð samtals 99,2 fermetrar, sem skiptist í íbúð 93,5 fermetrar... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:LAUS STRAX! Sérlega falleg og vel skipulögð fjögra herbergja íbúð á annarri hæð á besta stað í Vesturbænum, mikið endurnýjuð með afar smekklegum hætti. Í nýjum eignaskiptasamningi er íbúðin skráð sem eign 0203, birt stærð samtals 99,2 fermetrar, sem skiptist í íbúð 93,5 fermetrar og sér geymsla 5,7 fermetrar merkt 0109. Örstutt á KR-völlinn, sundlaug Vesturbæjar, Kaffi Vest við Hofsvallgötu og aðra veitingastaði á Nesvegi, Hagkaup og önnur þjónusta á Eiðistorgi í göngufæri ásamt skólum og heilsugæslu. Frábær staðsetning fyrir barnafólk, auðvelt aðgengi að leikskóla og skóla. Laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs.í síma 663-2508 eða .SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLITGóð aðkoma er að húsinu frá Kaplaskjólsvegi, næg bílastæði. Gengið er inn í stigagang frá bílastæðum, sameign er vel um gengin og lítur vel út. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sérgeymslu íbúðar.Komið er inn í forstofu íbúðarinnar, þar sem eru fataskápar og flísar á gólfi. Forstofa er opin í stofur og eldhús íbúðarinnar, sem eru í einu björtu rými. Eldhús, sem er smekklega endurnýjað með vönduðum tækjum, innrétting hvít með gráum borðplötum, gluggi til austurs yfir eldhúsbekk. Stofan er með stórum gluggum til vesturs sem tryggja góða birtu í rýminu, stórar svalir út frá stofu. Úr stofu er gengið niður tvær tröppur niður í miðrými sem nýtt er sem sjónvarpsrými, en úr rýminu er gengið í öll þrjú svefnherbergi eignarinnar og baðherbergið. Herbergin eru björt og vistleg, fataskápar í báðum barnaherbergjum og stór skápur í hjónaherbergi. Rúmgóðar svalir eru útfrá svefnherbergi. Baðherbergi er nýlega endurnýjað, með göngusturtu, innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og flísum.Fallegt viðarparket er á herbergjum og sameiginlegum rýmum íbúðarinnar, nema flísar á eldhúsi, baði og forstofu. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, sem er nýtt með tveimur öðrum íbúðum. Á efstu hæð í stigaganginum er sameiginlegt gufubað með sturtu og salernisaðstöðu.Mjög vel hönnuð og smekklega endurnýjuð íbúð á afar vinsælum stað í Vesturbænum.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is***Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Heimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook