Borg fasteignasala kynnir: Raðhús að Kaplaskjólsvegi 77, 107 Reykjavík.Raðhúsið er á tveimur hæðum, á neðri hæð eru anddyri, þvottahús, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa. Aukin lofthæð er í stofu og útgengi á suður verönd. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og fjölskyldurý...
Sýna meira
Borg fasteignasala kynnir: Raðhús að Kaplaskjólsvegi 77, 107 Reykjavík.Raðhúsið er á tveimur hæðum, á neðri hæð eru anddyri, þvottahús, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa. Aukin lofthæð er í stofu og útgengi á suður verönd. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og fjölskyldurými. Sérlega rúmgott og fallegt fjölskylduhús á þessum eftirsótta stað í Vesturbænum. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin 186,4 fm, þar af eru stigi 3,0 fm, sérgeymsla 12,2 fm og sérmerkt bílastæði í bílgeymslu 31,7 fm.Raðhúsið er byggt árið 1998, bílasæði eru fyrir framan húsið og bílageymsla undir húsinu.Lýsing eignar - Neðri hæð:Flísalögð og rúmgóð forstofa með fataskápum og gestasnyrting.Eldhús með gluggum sem snúa út að götu, innrétting er hvítlökkuð með nýlegri viðarborðplötu. Við enda innréttingar er svokallað morgunverðarborð. Rúmgóð borðstofa þar sem opið er niður í stofu. Gengið er niður fimm þrep í bjarta stofu með aukinni lofthæð sem gefur rýminu sjarma. Þar eru tvær hurðir út á suðurverönd. Þvottahús með innréttingu, þaðan er gengið niður í bílageymslu og geymslu.Er því innangengt frá bílageymslu í íbúðina.Í dag er búið að loka af þau tvö stæði sem fylgja íbúðinni og gera tómstundaherbergi.Auðvelt er að breyta því aftur í bílastæði.Efri hæð:Komið er upp í fjölskyldurými þar sem hátt er til lofts, þakgluggi og sjónvarpsaðstaða. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum.Barnaherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með fataskápum.Baðherbergi er flísalagt bæði á gólfi og veggjum. Við innréttingu er stór spegill á vegg og gluggar. Hornbaðkar og flísalaður sturtuklefi.Gólfefni íbúðar eru harðparket, flísar í votrými og kókosteppi á sigum.Kjallari:Bílageymsla með tveimur sérmerktum bílastæðum.Sérgeymsla sem er 12,2 fermetrar að stærð.Glæsilegt raðhús á eftirsóttum stað í Vesturbænum við KR völlinn. Stutt er í verslanir, sundlaug Vesturbæjar, leikskóla, skóla, íþróttir og útivist. Nánari upplýsingar:Gunnlaugur Þráinsson, löggiltur fasteignasali, s. 844 6447 / Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill BORG fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
22 myndir
Húsnæðislán
Kíktu á dæmið með Aurbjörgu
kr.
kr.
ár
kr.
Kaplaskjólsvegur 77 - 0103, 107 Reykjavík skráð 06.01.2023