Miklaborg kynnir: Sérlega fallegt einbýli við Kaplarskjólsveg í vesturbæ Reykjavíkur. Frábær staðsetning. Húsið sjálft er 220 fm að stærð með bílskúr og hefur verið mikið nostrað við það í gegnum tíðina. Afar vandaðar sérsmíðaðar innréttingar úr sér meðhöndlaðri eik ásamt innfelldri lýsingu. Fallegu...
Sýna meira
Miklaborg kynnir: Sérlega fallegt einbýli við Kaplarskjólsveg í vesturbæ Reykjavíkur. Frábær staðsetning. Húsið sjálft er 220 fm að stærð með bílskúr og hefur verið mikið nostrað við það í gegnum tíðina. Afar vandaðar sérsmíðaðar innréttingar úr sér meðhöndlaðri eik ásamt innfelldri lýsingu. Fallegur skjólgóður garður með sólpalli og heitum potti til suðurs. Húsið er á 2.hæðum neðri hæð er steypt, efri hæð timbur . Húsið er skráð 194,9 fm og bílskúr 25,2 fm. Hægt er með auðveldum hætti að breyta hluta neðri hæðar í sér íbúð. Mikill hluti lagna, ásamt dreni kringum hús og klóaki endurnýjað. Hiti í stétt við hús og bílskúr.Nánari lýsing efri hæðar:Forstofa: Rúmgóð og björt með stórum skápum.Gestasnyrting: Hvít sérsmíðuð innrétting með speglaskáp og steini á borði. Opnanlegur gluggi.Eldhús: Falleg sérsmíðuð innrétting úr burstaðri, dökkbæsaðri eik. Mikið borð/vinnupláss og vönduð tæki.Granít borðplata.Borðstofa: Fallegur skenkur og glerskápur sem eru sésmíðaðir inn í rýmið. Úr borðstofu er gengið út á pall sem liggur niður á skjólsælan afgirtann sólpall mót suðri.Stofa: Björt með fallegum og stórum gluggum með góðu útsýni út á Álftanes og Reykjanes. Sérsmíðaður sjónvarpsskenkur.Skrifstofa: Sérsmíðaðar skrifstofuinnréttingar úr burstaðri eik.Svefnherbergi: parketlagt og með fataskápum.Gengið er um teppalagðan stiga á neðri hæð.Lýsing neðri hæðar:Hol: lítið hol/gangur sem tengir rými neðri hæðar saman.Hjónaherbergi: Er rúmgott og bjart. Fyrir framan er rými sem hægt væri að nýta sem fataherbergi.Þrjú herbergi: Rúmgóð og parketlögð. Skápar í herbergjum.Baðherbergi1: Flísalagt með speglaskáp, upphengdu salerni og sturtuklefa. Hiti í gólfi.Baðherbergi2: Flísalagt með hvítri innréttingu, baðkari, sturtuklefa og upphengdu salerni. Hiti í gólfi.Þvottahús: Búið er að útbúa þvottahús í óskráðu rými sem áður var undir stiga í inngangi hússins. Flísar á gólfi og innrétting undir þvottavél og þurkara.Bílskúr: Er rúmgóður með rafmagni, hita og rennandi köldu og heitu vatni.Gófefni: Flísar á votrýmum og forstofu en eikarparket á hæð og harðparket á jarðhæð.UM ER AÐ RÆÐA MJÖG FALLEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á 568 FERMETRA LÓÐ Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ Í VESTURBÆ REYKJAVÍKUR.