Jötnaborgir 12, 112 Reykjavík er björt 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvölum og bílskúr í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1999. Um er að ræða 143,7 fermetra eign með sérinngang af útisvölum sem skiptist í 111,2 fermetra íbúðarými og 32,5 fermetra bílskúr. Íbúðin er vel skipulögð með forstofu, þ... Sýna meira
Jötnaborgir 12, 112 Reykjavík er björt 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvölum og bílskúr í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1999. Um er að ræða 143,7 fermetra eign með sérinngang af útisvölum sem skiptist í 111,2 fermetra íbúðarými og 32,5 fermetra bílskúr. Íbúðin er vel skipulögð með forstofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu og þvottahús innan íbúðar. Húsinu hefur verið ágætlega vel viðhaldið og voru sprunguviðgerðir lagaðar á húsinu árið 2021.Mjög gott útsýni er frá íbúðinni til norðurs yfir flóann og til Snæfellsness og mjög friðsælt og gróið svæði er sunnan við íbúðina.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 143,7 fm, þar af er bílskúr 32,5 fm Nánari lýsing:Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfiStofa: björt og rúmgóð með parketi á gólfum og útgengi út á suðursvalirEldhús: með mahagony innréttingu, 4 sökkulskúffum og vönduðum tækjum. Spanhelluborð, flísar milli skápa og parket á gólfumSvefnherbergi I: rúmgott með fataskáp og góðu útsýni yfir Faxaflóan og Snæfellsnes. Dúkur á gólfiSvefnherbergi II: með dúk á gólfi og fataskáp Svefnherbergi III: með dúk á gólfi og fataskápBaðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, baðkar og sturtuklefiÞvottaherbergi: er innan íbúðar, flísar á gólfiBílskúr: rúmgóður og gott sér bílastæði framan við. Ágæt geymsla inn af bílskúrSameign: mjög snyrtileg og vel um genginLóð: sameiginleg, ágætlega hirt og snyrtilegÍbúðin er staðsett á góðum stað þar sem bæði leik- og grunnskóli er í mínútu göngufæri. Þá er stutt í alla helstu þjónustu, útivistarsvæði og gönguleiðir við sjóinn og við Geldingarnes. - - -Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa Procura fasteignasölu í síma 497 7700, og Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali í síma 772 0102, Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.500 kr. fyrir hvert skjal. - Kynntu þér fasteignaþjónustu Procura og nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.