*** Jörundarholt 21, 300 Akranes ***OPIÐ HÚS: Eignin verður sýnd mánudaginn 8. júní 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
PRIMA fasteignasala og Oliver Bergmann lögg.fasteignasali kynna: Sérstaklega glæsilegt og mikið endurnýjað 5-6 herb. einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Stærð húss alls 174.8 fm. og bílskúrs 40,0 fm. Samtals 214,8 fm. Gengið inn á neðri hæð í forstofu með góðu skápaplássi, bjart og opið eldhús, rúmgott alrými með stofu/borðstofu með útgengi út á suður verönd, heita pottur, fallegur arinn í stofu, þvottahús og gesta saleri á neðri hæð. Á efri hæð er rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi - útgengi út á suður svalir, 3 svefnherbergi til viðbótar, 1 rúmgott og einstaklega fallegt baðherbergi. Búið er að útbúa herbergi í bílskúr með litlu wc og sturtu. - geymsluloft fyrir ofan herb.
Húsið er staðsett í grónu og rólegu hverfi. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttir, og síðast en ekki síst á golfvöllinn.
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN / FÁ SENT SÖLUYFIRLITNánari lýsing: NEÐRI HÆÐ: Forstofa með fataskáp. Þaðan er gengið inn í hol sem leiðir inn í opið eldhús. Flæðandi parket á gólfi.
Eldhúsið er með fallega hvíta innréttingu og dökka borðplötu. Góð tæki - Innbyggð uppþvottavél. Eyja sem hægt er að sitja við. Gott skápapláss.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi bjart og rúmgott rými. Útgengt úr stofu um dyr með tvöfaldri opnun á stóra sólríka suður verönd og fallegan gróinn garð. Arinn í stofu.
Gestasnyrting inn í þvottahúsi. Upphengt wc. Flísar.
Þvottahús, Góð innrétting, flísar á gólfi, útgengt úr þvottahúsi að bílskúr.
Gólfhiti og ofnar á jarðhæð.
EFRI HÆÐ: Fallegur hvítur tréstigi upp á efri hæð.
Hjónaherbergi: Rúmgott, stór fataskápur og útgangi á stórar flísalagðar suður svalir um dyr með tvöfaldri opnun.
3 svefnherbergi til viðbótar á efri hæð.
Baðherbergi með góðum hvítum innréttingu, speglaskáp, og stórri walk-in sturtu. Vola hreinlætistæki og hanklæðaofn. Upphengt wc. Flísar á gólfi.
ANNAÐ:40 m2 góður
bílskúr. Búið er að útbúa rúmgott herbergi í bílskúr með wc og sturtu. Geymsluloft fyrir ofan herb.
Hitalögn í innkeyrslu sem er hellulögð. Næg stæði við húsið fyrir bíla / ferðavagna. Sérlega fallegur og vel hirtur garður. Opið óbyggt svæði við lóðarmörk.
ENDURBÆTUR:2019: Útbúið unglingaherbergi í bílskúr með litlu wc og sturtu.
2020: Baðherbergi endurnýjað á efri hæð, Wc snyrtingu neðri hæð endurnýjað, Neysluvatn endurnýjað og komið fyrir varmaskipti, Cat strengur dregin í öll herbergi.
2021: Nýtt eldhús, Þvottahús innrétting, hengislá og handklæðaofnar, Parket og nýjir ofnar.
2022: Heitur pottur og stýring.
2023: Nýjar innihurðar að hluta, Lítil skrifstofa stúkuð af í bílskúr.
2024: Húsið málað að utan, Nýr þakkantur.
2025: Ný niðurfallsrör frá rennum, Þakið málað.
Húsið er staðsett í grónu og rólegu hverfi. Stutt í skóla, leikskóla, íþróttir, og síðast en ekki síst á golfvöllinn.
Nánari upplýsingar veitir:Oliver Bergmann löggiltur fasteignasali / s. 787 3505 /
oliver@primafasteignir.is__________________________________________________________________________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.