Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Glæsilegt heilsárshús með stórri eignarlóð, miklu útsýni, bílskúr og stórri verönd allt um kring. Húsið stendur mjög hátt í landi Indriðastaða, í lokuðu hverfi með aðgangansstýringu. Góð aðkoma er að húsinu sem stendur á 6.237 fm eignarlóð fremst í Skorradalnum. Gólfhiti og heitur pottur á verönd.
***Skipti á ódýrari eign koma til greina*** I
ndriðastaðahlíð 162 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt: 01-01, birt stærð 266,5 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 26,6 fm ásamt 77,7 fm bílskúr, efri hæðin er skráð 162,2 fm eða samtals: 266,5 fm.
Nánari lýsing eignar: Neðri hæðin skiptist í bílskúr, opið rými, stórt þvottahús og innaf bílskúrnum er gluggalaust rými. Bílskúrinn er með sjálfvirkum hurðaopnara. Expoxy á gólfum neðri hæðar. Við þvottahús er stigi upp á efri hæðina. Aðalinngangur er sunnanmegin við húsið. Komið er inn í góða
forstofu. Frá forstofu tekur við opið rými. Björt og rúmgóð
stofa með stórglæsilegu óhindruðu útsýni út á stórbrotna náttúrufegurð.
Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu með góðu geymslu- og vinnuplássi, eldunareyja. Rúmgóður
borðkrókur með útgangi út timburpallinn / svalirnar með glæsilegu útsýni. Innaf borðkróknum er mjög rúmgott
svefnherbergi og innaf því er baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á
timburpalinn / svalirnar og þaðan í
heitan pott.
Setustofa / sjónvarpsstofa með útgangi út á timburpallinn / svalirnar. Flísalagt
baðherbergi í hólf og gólf, Walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt salerni. Frá baðherbergi er unnt að ganga út á timburpall / svalirnar.
Þrjú svefnherbergi til viðbótar eru í húsinu og er fataskápur í einu herbergjanna.
Gólfefni: parket og flísar á efri hæð, epoxý á neðri hæð.
Afar glæsilegt sumar- / heilsárshús á vinsælum, fallegum og friðsælum stað fremst í Skorradalnum. Stutt í alla helstu verslun og þjónustu í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.