Hreiðar Levý lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna vel hannaða og bjarta 93,1fm, 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð að Hverafold 23, 112 Reykjavík. Húsið 4 hæða steinsteypt fjölbýlishús sem samanstendur af stigagöngunum Hverafold 19-23 og er teiknað af Inga G. Þórðarsyni arkitekt. 8 íbúðir eru í stigagangi, 2 á hverjum palli. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús innan íbúðar, baðherbergi, 2 svefnherbergi ásamt sér geymslu á sameignargangi á jarðhæð. frábær staðsetning í Foldarhverfinu í Grafarvoginum. Leik- og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt verslunarmiðstöðinni Hverafold sem býður upp á fjölbreytta verslun og þjónustu. Þá er stutt í fallegar göng- og hjólaleiðir við voginn.
2025: Skipt um járn á þaki hússins. Verið er að endurnýja þakrennur á húsinu og gera við fúaskemmdir í þakkanti sem verður svo málaður.
2024: Skipt um alla glugga og gler í íbúðinni.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.isEignin Hverafold 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-2604, birt stærð 93.1 fm, þar af er sérgeymsla í kjallara skráð 4,7 fm. Nánari lýsing:Forstofa: með flísum á gólfi.
Þvottaherbergi: er inn af forstofu með nýlegri innréttingu með góðu skápaplássi og skolvask. Gólf er málað.
Eldhús: er endurnýjað með fallegri innréttingu frá Fríform og innbyggðri uppþvottavél. Eldhústæki eru frá AEG. Gott skápa- og vinnupláss.
Stofa: er bjart og rúmgott samliggjandi opið rými Þaðan er gengið út á svalir.
Svefnherbergi I: er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: er með innréttingu og góðum spegli, baðkari, sturtubotni með hengi, salerni og flísum á gólfi og veggjum.
Sérgeymsla: er í sameign, 4,7 fm.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.Frábær staðsetning niður við Voginn í Hverafold Grafarvogi þar sem er sérstaklega skjólgott og veðursælt. Stutt er skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu. Góðar gönguleiðir og stutt í íþróttaaðstöðu og sundlaug.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.