Eignaver 460-6060
Hvassaland 5 - Hálönd.
Nýlegt, fallegt og sérlega vandað fjögurra herbergja, heilsárshús á fallegum stað við ræturs Hlíðarfjalls. Einstakt útsýni.Húsið er samtals 108,7 fm., þar er m.a. baðherbergi með aðgengi að heitum potti í sérstöku rými og auka snyrting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Húsið skiptist í
forstofu,
geymslu,
snyrtingu,
þrjú svefnherbergi,
stofu/eldhús sem eru eitt rými,
baðherbergi með sturtu, þaðan er gengið inn í yfirbyggt rými með
heitum potti. Forstofa er rúmgóð, fatahengi, flísar á gólfi.
Snyrting með upphengdu salerni, innréttingu með vaska, pláss fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, á gólfi eru flísar.
Svefnherbergi eru þrjú, með fataskápum, á gólfi eru flísar.
Stofa og eldhús er eitt rými, flísar á gólfum, hvít innrétting með góðum skápum, innbyggð uppþvottavél fylgir með.
Úr stofu er hægt að ganga út á steypta verönd, inn í rýmið þar sem heiti potturinn er.
Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, hvít innrétting, flísar á gólfi.
Geymsla, þar eru inntök húss og loftskiptibúnaður. Gólf er flísalagt.
Annað:- Malbikað bílastæði.
- Snjóbræðsla er í pöllum og stéttum hússins, lokað kerfi.
- Gólfhiti í húsinu.
- Loftskiptakerfi.
- Innbúið er einnig til sölu fyrir utan persónulega muni.
*** Virkilega vandað og fallegt hús með einstöku útsýni. ***Eignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is