Andri Freyr Halldórsson & Kristján Þórir Hauksson - LIND fasteignasala kynna til sölu:
Bjarta og fallega 3. herbergja 66.5 fm íbúð. Eignin er við Hringbraut 38 í fjölskylduvænu hverfi í Hafnafirði.
Íbúðin er á efstu hæð/risi með Hafnarfjarðar kvisti, í fjölbýlishúsi byggðu árið 1951.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 66.5 fm.
*Frábær fyrstu kaup!
*Fallegt útsýni.
*Stærri gólfflötur.
*Nýlega endurnýjað þak árið 2020.
Íbúðin er í risi í þríbýlishúsi. Steyptar útitröppur liggja að aðalhæð þar sem er sameiginlegur inngangur. Teppalagður steyptur stigi liggur upp í íbúðina.
Íbúðin - er með töluvert stærri gólfflöt en fermetratalan segir um - skiptist í forstofugang, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með geymslu inn af. Yfir íbúðinni er geymsluloft. Nánari lýsing eignar:Inngangur: nýlegt teppi og flísar á gólfum.
Forstofa/miðrými: fallegt miðrými tekur við þér þegar komið er inn í íbúðina.
Eldhús: snyrtilegt, með málaðri upprunalegri innréttingu þar sem hver fermetri er vel nýttur. Nýlegur þakgluggi.
Stofa/borðstofa: björt og rúmgóð með kvisti og nýlegum glugga.
- Falleg útsýni yfir Hafnafjörð.Hjónaherbergi: með kvisti og nýlegum glugga Innbyggðar hillur í súðarvegg.
Svefnherbergi 1: er með harðparket á gólfum & fínum fataskápum.
Baðherbergi: flísalagt að hluta með baðkari. Geymsla með innbyggðum hillum innaf baðherbergi.
Sameign/Þvottahús: þvottahús staðsett í sameign.
Vel gróinn sameiginlegur garður ásamt lítilli hlutdeild í Jófríðarstaðarlandi. *Viðhald síðustu ára að sögn seljanda: Árið 2020 var þakið tekið í gegn. Þá var allt undirlag lagað og endurnýjað þar sem það þurfti, skorsteinn var fjarlægður, þakgluggar endurnýjaðir og nýtt járn sett á allt þakið. Einnig voru settir í nýir kvistagluggar. Rafmagn endurnýjað fyrir einhverjum árum og nýleg rafmagnstafla. Skólp hefur verið endurnýjað úr kjallara og út í götu.
Hringbraut 38 er á góðum stað í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi í Hafnarfirði. Í næsta nágrenni eru falleg útivistarsvæði, göngu- og hjólaleiðir sem skapa notalegt og rólegt umhverfi til daglegra útiveru.
Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu, verslanir, kaffihús og aðra fjölbreytta þjónustu. Þá er einnig góð tenging við helstu samgönguæðar og almenningssamgöngur sem gerir staðsetninguna afar hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali / 6961122 / KRISTJAN@FASTLIND.ISAllir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.