Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Hrauntún 2 sem er fallegt einbýlishús með 4 svefnherbergjum á frábærum stað í Vestmannaeyjum. Byggingarefni er holsteinn, eignin er byggð árið 1969 og er 171,1 m2, þar af er bílskúr 27,5 m2. Baðherbergi var endurnýjað nýlega. Gluggar á norðurhlið hafa verið endurnýjaðir. Húsið var einangrað og múrað fyrir einhverjum árum. Fallegt og vel skipulagt einbýlishús með innangengum bílskúr og 4 svefnherbergjum. Góður pallur og stór garður.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi, skápur
Stofa: Parket á gólfi, innfelld lýsing í lofti, útgengt á pall
Eldhús: Flísar á gólfi, viðar innrétting, flísar á milli skápa
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt wc, innrétting með Quartz borðplötu, opnanlegur gluggi
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Þvottahús: Dúkur á gólfi, mikið skápapláss, skolvaskur, sérinngangur
Bílskúr: Steypt gólf, rafdrifin bílskúrshurð, hleðslustöð, gott geymslurými á lofti.
Pallur: Timburpallur, útgengt frá stofu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.