Eignin er seld með fyrirvara. Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega og vel skipulagða 204,1 fermetra efri sérhæð og ris í mjög góðu þríbýlishúsi við Hraunteig 28 í Reykjavík auk 24,5 fermetra bílskúrs sem innréttaður hefur verið sem íbúð. Þrjár stofur, 6 - 7 svef... Sýna meira
Eignin er seld með fyrirvara. Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega og vel skipulagða 204,1 fermetra efri sérhæð og ris í mjög góðu þríbýlishúsi við Hraunteig 28 í Reykjavík auk 24,5 fermetra bílskúrs sem innréttaður hefur verið sem íbúð. Þrjár stofur, 6 - 7 svefnherbergi og tvö baðherbergi eru í íbúðinni og sér íbúð er í bílskúr. Stór sameiginleg lóð með tyrfðum flötum, trjágróðri og sameiginlegri viðarverönd með skjólveggjum. Sér bílastæði á lóð fyrir framan bílskúr. Þakjárn, þakrennur, niðurföll, klóaklagnir undir húsi og út í götu og drenlagnir við húsið hafa verið endurnýjuð. Þak á bílskúr er allt nýtt, þakborð, sperrur og þakpappi. Hæðin er skráð 142,2 fermetrar að stærð, risið er skráð 61,9 fermetrar að stærð en er mun stærra að gólffleti og bílskúrinn er skráður 24,5 fermetrar. Lýsing eignar: Forstofa, flísalögð og þaðan steyptur linoleumdúklagður stigi upp á efri hæð. Stigapallur, stór, linoleumdúklagður og bæði gengið af honum inn á svefngang og í hol. Svefngangur, parketlagður og með fataskápum. Barnaherbergi I, parketlagt. Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting, baðkar og flísalögð sturta. Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með útgengi á svalir til austurs. Hol, parketlagt, rúmgott og bjart með stórum glugga til vesturs. Mjög fallegur viðarstigi úr holi upp á rishæð. Þrjár samliggjandi stofur, stórar, bjartar og skiptanlegar. Allar stofurnar eru parketlagðar, rennihurðir eru á milli borðstofu og setustofu og mjög fallegur arinn með flísalögn í kringum er í arinstofu. Eldhús, sem bæði er gengið í úr borðstofu og af gangi er korkflísalagt og með borðaðstöðu. Hvítar innréttingar með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Gengið er upp á rishæð um mjög fallegan upprunalegan viðarstiga. Stigapallur, kókosteppalagður. Barnaherbergi II, linoleumdúklagt og með nýlegum stórum kvistglugga til austurs. Barnaherbergi III, linoleumdúklagt og með kvisti til suðurs. Barnaherbergi IIII, linoleumdúklagt og með kvisti. Baðherbergi II, með nýlegum veltiglugga, flísalagt gólf og veggir, baðkar og vaskskápur. Barnaherbergi IV, linoleumdúklagt og rúmgott með kvistglugga. Fataherbergi, með kvistglugga, korkflísalagt og með skápum. Þvottaherbergi, innaf fataherbergi er með nýlegum veltiglugga, lakkað gólf. Geymsluris er yfir rishæð hússins. Bílskúr, er nýlega innréttaður sem íbúð og skiptist í flísalagt baðherbergi með sturtu, eldhús með hvítum innréttingum og parketlagt svefnherbergi. Ástand bílskúrs að innan er gott og nýtt þak er á bílskúr. Sér bílastæði fylgir íbúðinni á hellulagðri innkeyrslu fyrir framan bílskúr. Í kjallara hússins eru: Sér geymsla undir útitröppum, ca 5 fermetrar að stærð. Sameiginlegt þvottaherbergi, með gluggum og sér tenglum fyrir hverja íbúð. Stór sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð. Húsið að utan lítur vel út að langstærstum hluta en þó þarf að laga svalir á austurhlið hússins, sem eru steyptar. Þakjárn, þakrennur og niðurföll eru 12 ára. Klóaklagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar fyrir um 20 árum síðan. Drenlagnir kringum húsið voru endurnýjaðar fyrir um 12 árum síðan. Útitröppur eru nýlega endurnýjaðar. Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum stéttum fyrir framan hús með hitalögnum undir og tyrfðri flöt. Baklóðin er stór með tyrfðri flöt, trjágróðri og nýlegri stórri viðarverönd. Lóðin er öll í óskiptri sameign hússins, utan innkeyrslu sem er tilheyrandi íbúðinni. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum grónum stað við Laugardalinn þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, sundlaug, verslanir, þjónustu og falleg útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu Fletta í fasteignalista