Prima fasteignasala og Haukur Páll Ægisson lgf. kynna í einkasölu Hraunhóla 4 á Selfossi.
Um ræðir fjögurra herbergja parhús í fallegu hverfi með malbikuðu bifreiðaplani og hellulagðri innkomu að húsinu. Húsið skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi ásamt auka salerni, þvottahús og bílskúr.
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu, klætt að utan með hallandi bárujárni og er skráð 187.8 fm þar af bílskúr 33.5 fm.
Lýsing eignar.Forstofa björt og rúmgóð, parketlögð með góðum fataskápum með lýsingu.
Eldhús rúmgott með fallegri hvítri Ikea innréttingu og upphengdum skápum.
Rúmgóð og björt
stofa ásamt
borðstofu í opnu rými við eldhús.
Útgengt um vandaða rennihurð út úr borðstofu út á sólpall. Nær öll lýsing í húsinu er innfelld og vel skipulögð.
Hjónaherbergi með sturtu og salernisaðstöðu ásamt góðu fataherbergi með stórum skápum og upphengi slám. Útgengt er út á lokaðan og mjög skjólsælan pall í bakgarði úr hjónaherbergi.
Tvö góð
barnaherbergi með rúmgóðum fataskápum, þar af annað við forstofu inngang.
Þvottahús er flísalagt og með hvítri fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og vaski. Tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er kalt geymslurými sem er yfir húsinu, um 20m2 og auðvelt að stækka.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, góðri walk-in sturtu aðstöðu, stóru baðkari, tveimur vöskum og stórum upphengdum spegli með lýsingu. Gert er ráð fyrir handklæðaofni.
Vandað Quick Step parket frá Harðviðarval er á alrými, herbergjum og forstofu. Allar flísar eru frá Flísabúðinni við Gullinbrú.
Bílskúr er rúmgóður og snyrtilegur, epoxy á gólfum og extra breið innkeyrsluhurð. Góð innrétting með vinnuaðstöðu og skápaplássi.
Bílaplan malbikað og er með steyptu ruslatunnuskýli.
Hellulagður og skjólsæll pallur að framan, rúmgóður timbur pallur við hlið húss þar sem kvöldsólin nýtur sín og um 50m2 lokaður timburpallur að aftan með heitum potti og skjólveggjum.
Í húsinu öllu er aukin lofthæð. Garður og pallar eru teiknaðir af Urban design arkitektum. Útitenglar á nokkrum stöðum og auðvelt að bæta enn frekar við.
Virkilega falleg og snyrtileg eign sem vert er að skoða.
Mjög stutt í leik- og grunnskóla.
Seljendur skoða skipti á eignum á höfuðborgarsvæðinu.Nánari upplýsingar veita:Haukur Páll Ægisson löggiltur fasteignasali / s.7729970 / haukurpall@primafasteignir.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.