Lind Fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar 3-4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu 4ra hæða fjölbýlishúsi á besta stað í Urriðaholti. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.Afhending eigi síðar en 30.10.21Íbúð 0201: 120,8 fm, 4ra herbergja íbúð á 2. hæð m... Sýna meira
Lind Fasteignasala kynnir nýjar og glæsilegar 3-4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu 4ra hæða fjölbýlishúsi á besta stað í Urriðaholti. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.Afhending eigi síðar en 30.10.21Íbúð 0201: 120,8 fm, 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með stæði í bílageymslu.Um er að ræða 13 íbúða fjölbýli á 4 hæðum með aðalinngangi á 1. hæð ásamt lokuðu bílastæðahúsi. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.Nánari lýsing:Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.Eldhús: Parket á gólfi, innrétting með góðu skápa- og borðplássi ásamt eldunareyju, opið við stofu.Alrými: Parket á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á svalir.Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 13,9 fm. Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 10,2 fm.Herbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 10,7 fm.Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, sturta með hertu sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn.Þvottahús: Sér þvottarhús, innrétting undir þvottavél og þurrkara.Svalir: Í suð- vestur.Geymsla: Í sameign, 7,6 fm.Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.Bílastæði: Bílastæði í bílgeymslu fylgir merkt B05 á teikninguLóð: Lóðir verða frágengnar, frágengin bílastæði og hellulagðar gönguleiðir. Sameiginleg útisvæði verða frágengin í samræmi við lóðarhönnun. Grassvæði verða fágengin og gróðurbeð grófjöfnuð, gróður fylgir ekki. Séreignareitir verða frágengnir en girðingar, skjólveggir o.þ.h fylgja ekki. Leiktæki og búnaður á lóð fylgir ekki.Aðkoma að húsi verður hellulögð og snjóbræðsla þar sem við á samkvæmt lagnateikningum. Aðalinngangur er á 1.hæð ásamt innkeyrslu í bílageymslu.Gólf eru parketlögð harðparketi frá Ebson ehf. og gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð með flísum frá Ebson ehf.Innréttingarnar eru af vandaðri gerð frá Proexport, framleiðandi er Baltasfurniture. Framhliðar mattsvartar að lit. Borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítu corian steinefni 24mm þykkar með vaski úr sama efni án samskeyta. Eldhústæki eru Samsung að undanskildum háfum sem eru af gerðini Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja. Hreinlætistæki eru frá Grohe, Salerni eru upphengd og með innbyggðum skolkassa í vegg gerð Grohe/Laufen.Innihurðar eru yfirfelldar og sprautulakkaðar (hvítar) af gerðini Dana frá Parka ehf.Burðakerfi hússins er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með vönduðum álklæðningum frá Áltak einnig er 1 hæð og hluti 2 - 4 hæðar með sementstrefjaplötum frá málmtækni sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Allir gluggar eru úr ál/tré kerfi frá Velfag og glerjaðir með einangrunargleri.Bílastæði 10 bílastæði eru í bílageymslu og gert er ráð fyrir 13 útibílastæðum fyrir Hraungötu 23 og þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.Frekari upplýsingar í skilalýsingu hjá fasteignasala.Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar það verður lagt á íbúðina.Innimyndir af eigninni eru af sambærilegum innréttingum sem teknar voru í Hraungötu 21.Frekari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasaliSímanúmer: 848-2666Tölvupóstur: Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali símanúmer: 699-2010Tölvupóstur: Byggingaraðili hússins er Þarfaþing ehf sem er 28 ára gamalt fyrirtæki og hefur því áralanga reynslu af framkvæmdum fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma.Söluverðmat Hér getur þú óskað eftir verðmati á eigninni þinni þér að kostnaðarlausu og án allra skuldbindingaLind Fasteignasala Uppspretta ánægjulegra viðskipta