Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilega þriggja herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu, í nýlegu 15 íbúða fjölbýli að Hraungötu 15-17 í Urriðaholti í Garðabæ. Eignin er skráð 86,6 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 80,8 m2 og geymsla (merkt 01-14) 5,8 m2, og skipt... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir til sölu glæsilega þriggja herbergja íbúð á þriðju (efstu) hæð, ásamt stæði í lokaðri bílageymslu, í nýlegu 15 íbúða fjölbýli að Hraungötu 15-17 í Urriðaholti í Garðabæ. Eignin er skráð 86,6 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 80,8 m2 og geymsla (merkt 01-14) 5,8 m2, og skiptist í anddyri, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús og stofu með útgengi á skjólgóðar svalir með útsýni yfir Urriðaholtsvatn. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, Nánari lýsing: Forstofa: gengið um snyrtilega sameign og komið inn í rúmgóða forstofu íbúðar þar sem er fataskápur. Á gólfi er parket.Eldhús/Stofa: eru í opnu björtu alrými. Í eldhúsi er sérsmíðuð innrétting frá Axis, helluborð, blástursofn og gufugleyp af gerðinni AEG frá Ormsson og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Á gólfi er fallegt plankaparket frá Agli Árnasyni og frá stofu er útgengt á skjólgóðar svalir sem snúa í suð-vestur og bjóða upp á útsýni yfir vatnið. Hjónaherbergi: rúmgott með teppi á gólfi, góðum fataskápum og glugga með opnanlegu fagi.Svefnherbergi: rúmgott með parket á gólfi og glugga með opnanlegu fagi. Baðherbergi: er með fallegri hvítri innréttingu frá Axis, vegghengdu WC, handklæðaofni og innangengri sturtu. Á gólfi og á hluta af veggjum eru 60x40 flísar. Þvottahús: er inn af baðherbergi, flísar á gólfi og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Allir fataskápar, bað- og eldhúsinnrétting eru sérsmíðaðar frá Axis, blöndunartæki eru Grohe, parket er frá Agli Árnasyni og í loftum er innfelld LED lýsing. Í íbúðinni er frístandandi loftræstikerfi sem er með varmaendurvinnslu og endurnýtir við bestu aðstæður allt að 80% varmans. Loks fylgir eigninni stæði í lokuðum bílakjallara, rúmgóð geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Falleg og vel skipulögð íbúð í nýlegu hverfi þar sem stutt er í falleg útivistarsvæði, barnvæn leiksvæði, leik- og grunnskóla ásamt úrvali verslanna og þjónustu í Kauptúni. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.