Fallegt mikið endurnýjað parhús á einni hæð með sólskála og sérstæðum bílskúr sem á tveimur hæðum og er bílskúrinn stærri sem nemur kjallaranum. Í húsinu eru nú þrjú svefnherbergi en voru áður fjögur, lítið mál að breyta aftur ef vill. Í sólstofu er heitur pottur og saunaklefi sem fylgja. Gólfhiti er kominn í allt húsið og búið er að endurnýja neysluvatnslagnir. Á bílskúr er nýleg hurð frá Gófaxa með hurðaopnara.
Komið er inn í flísalagt andyri með góðu skápaplássi og skrifstofuaðstöðu ( var áður herbergi). Innaf er gestasnyrting með sturtu, handklæðaofn og upphengt salerni, gluggi er á baði. Hol er flísalagt. Eldhús er flísalagt, nýleg innrétting og vönduð tæki. Stofa og borðstofa eru flísalagðar, hurð út í sólskála og þar er pottur með hitastýringu ásamt infrarauðum saunaklefa. Rennihurð er í skjólsælan afgirtan garð, rólur og sankassi fyrir börnin. Á herbergjagangi eru tvö barnaherbergi með skápum ásamt hjónaherbergi sem er líka með góðu skápaplássi. Baðherbergi er við enda á herbergjagangi, nýleg innrétting, handklæðaofn og sturta. Innaf baði er þvottahús með skolvaski og innréttingu ásamt útgöngu hurð.
Hér er á ferðinni mikið endurnýjað hús á eftirsóttum stað sem margir hafa beðið eftir.