Fasteignamarkaðurinn ehf. kynnir til leigu: Falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3ju hæð. Íbúðin er ný máluð, í húsi sem hefur fengið gott viðhald sem er staðsett í rólegu hverfi. Búið er að endurnýja alla glugga og hurðar í húsinu. Stutt er í helstu þjónustu og inn á fallegar gönguleiðir um Elliðaárdalinn.Forstofa með flísum af gólfi. Inn af forstofu er svefnherbergisgangur með parketi á gólfum og fataskáp.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi, þaðan er útgengt á suðursvalir með fallegu útsýni til Bláfjalla og skógi vaxin Elliðaárdalinn.
Eldhús með góðri eldri innréttingu með nýrri viftu ofan við eldavél og lýsingu milli efri og neðri skápa, borðkrók við glugga sem snýr út í garð. Uppþvottavél er til staðar.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, vaskur innfelldur í skáp og skápur á vegg. Walk-in sturta og hægt er að hafa þvottavél inn á baðherbergi.
Hjónaherbergi með stórum fataskápum, plastparketi á gólfi.
Barnaherbergi með plastparketi á gólfi.
Sér geymsla í kjallara.
Á lóð eru rafmagnshleðslusturar og sérmkert bílastæði með rafmagnstengli.
Í sameign kjallara er hjóla-og vagnageymsla. Á sömu hæð er sameiginlegt þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurkaðstöðu fyrir þvott.
Í göngufæri eru leik-og grunnskólar, heilsugæsla, verslanir, íþróttasvæði og sundlaug. Örstutt inn á frábærar gönguleiðir um Elliðardalinn.
Hiti er innifalin í leigu en leigutaki greiðir fyrir rafmagn, síma- og nettengingu.
Upplýsingar veitir Elín D Guðmundsdóttir, fasteignasali, í netfang: elin@fastmark.is eða síma: 6977714.