LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir snyrtilega 2.herbergja íbúð á 1.hæð við Hraunbæ 136 í góðu fjölbýlishúsi með sérmerktu bílastæði með möguleika á að tengja rafhleðslustöð. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi , geymslu innan íbúðar og sameiginleg þvottahús með einni annari íbúð við hlið íbúðar.
Nánari lýsing
Gengið er beint inn í stofuStofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir sem snúa út á bílastæði
Eldhús með dúkflísum á gólfi , innrétting á tvo vegu með ofni í vinnuhæð, helluborð með viftu yfir, gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu, borðkrókur,
Gangur með parketi á gólfi og fataskápum með rennihurðum.
Geymsla er inn af gangi með dúk á gólfi og hillum.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum með rennihurðum, nýlegu ofn.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innrétting með neðri og efri skáp, sturta og ný blöndunartæki
Sameiginlegt þvottahús með einni annari íbúð á sömu hæð, hver með sínar vélar.
* Framhlið eignar máluð 2021 en bakhliðin er klædd að utan
* Fyrir nokkurm árum var skipt um teppi á stigagangi, hann málaður og skipt um ofna
* Þakjárn endurnýjað í kringum 2011 * Rafmagn lagt í bílaplan, í hvert stæði 2024Góð snyrtileg eign með góðu aðgengi á vinsælum stað í Hraunbænum þaðan sem stutt er í allar áttir og þjónusta og afþreying í göngufæri. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is