LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: 79,3 fm þriggja herbergja íbúð á 1.hæð við Hraunbæ 128 í 110 Reykjavík. Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár. Sérmerkt bílastæði. Stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, grunnskóla, leikskóla og sundlaug.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.Nánari lýsing: Forstofa: Flísalagt gólf.
Hol: Fataskápur, hol tengir saman eldhús, stofu og svefnherbergisgang. Parketlagt.
Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Góður borðkrókur. Þvottahús innaf eldhúsi með hvítri innréttingu. Flísalagt.
Stofa: Björt stofa með parketi á gólfi. Útgengt á svalir.
Baðherbergi: Innrétting með handlaug. Salerni og baðkar með sturtuhengi. Flísalagt.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Herbergi: Parket á gólfi.
Þvottahús/Geymsla: Þvottahús er innaf eldhúsi. Flísalagt.
Sumarið 2020 var farið í þakviðgerðir, múrviðgerðir og mála húsið að utan.
Sumarið 2020 var skipt um glugga.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.