Miklaborg kynnir: Glæsileg 3ja herbergja endaíbúð við Hraunbær 103C fyrir 60 ára og eldri. íbúðin er á 5. hæð og er skráð 105,9 fermetrar og henni fylgir bílastæði í bílakjallara. Stórar yfirbyggðar svalir í suður og stórbrotið útsýni m.a. til suðurs og norðurs. Í næsta húsi er Félagsmiðstöðin Hraunbær 105 sem nýtist eldri borgurum vel. Íbúðin er laus við kaupsamning.
Ártúnsholtið er rótgróið hverfi og gott aðgengi til útivistar. Stutt er í alla þjónustu, verslun og stofnbraut.
Nánari lýsing á eigninni: Glæsileg 3ja herbergja endaíbúð á fimmtu hæð merkt(509) með lyftuaðgengi. Komið er inn í forstofugang með fataskáp. Stofa og eldhús eru í opnu rými sem er mjög bjart og snýr til suðurs. Útgengi er út á 13,6 fm yfirbyggðar svalir frá stofu. Falleg eldhúsinnrétting með eyjuborði, steinn á borðplötum og góð tæki en ísskápur og uppþvottavél fylgja með. Gott útsýni er frá stofurými til suðurs og austurs. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum á einum vegg. Aukaherbergi er með fataskáp. Baðherbergið er sérlega vel búið. Gólf og veggir eru flísalagðir að mestu: Rúmgóð göngusturta með gleri, upphengt salerni, góð innrétting með vask og spegli fyrir ofan með ljósum. Þvottavél og þurrkari eru feld inní innréttingu á baði en í innréttingunni eru einnig skápar. Gólfhiti er á baðherberginu. Herbergin og baðherbergi með óhindrað útsýni til Esjunnar. Allar innréttingar eru vandaðar með ljúflokunarbúnaði frá Arens (Ormsson) og blöndunartæki frá Tengi. Myndadyrasími er í íbúðinni.
Í kjallara er 15,1 fermetra geymsla með hillum sem fylgir eigninni. Einnig fylgir stæði í bílageymslu merkt B-08 og er búið að leggja grunnlagnir fyrir rafhleðslu þar. Upphitaðir gangstígar að húsi. Byggingarverktaki hússins er Dverghamrar ehf og arkitekt Kristinn Ragnarsson.
Mjög vel með farin íbúð fyrir 60 ára og eldri með góðu útsýni. Eignin er laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu




























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 29.05.2026 Nánar | 105,9 m² | 1.084.986 kr. | 114.900.000 kr. |
0105 | - | - | - | 49.900.000 kr. 15. mars 2021 |
0705 | - | - | - | 49.000.000 kr. 31. mars 2021 |
| 3 | 105,90 m² | 114.900.000 kr. 29. maí 2026 | 64.900.000 kr. 25. október 2019 |
0207 | - | - | - | 54.400.000 kr. 6. júní 2020 |
| - | - | - | 59.700.000 kr. 4. júlí 2020 |
0409 | - | - | - | 63.900.000 kr. 24. október 2019 |
0704 | - | - | - | 65.700.000 kr. 27. maí 2020 |
0307 | - | - | - | 55.900.000 kr. 4. maí 2020 |
| - | - | - | 59.500.000 kr. 24. október 2019 |
| - | - | - | 45.500.000 kr. 7. desember 2020 |
0208 ![]() | 2 | 66,50 m² | 67.900.000 kr. 13. febrúar 2025 | 67.900.000 kr. 7. febrúar 2025 |
0605 | - | - | - | 47.500.000 kr. 4. nóvember 2020 |
0408 | - | - | - | 46.500.000 kr. 23. mars 2021 |
0407 | - | - | - | 58.900.000 kr. 7. desember 2020 |
| - | - | - | 64.900.000 kr. 24. október 2019 |
0308 | - | - | - | 44.950.000 kr. 30. september 2019 |
0604 | - | - | - | 62.700.000 kr. 28. ágúst 2020 |
0706 | - | - | - | 66.900.000 kr. 30. október 2019 |
0209 | - | - | - | 59.900.000 kr. 24. október 2019 |
0106 | - | - | - | 94.000.000 kr. 12. ágúst 2024 |