Kjöreign fasteignasala kynnir Hraunbæ 102D mjög falleg og mikið endurnýjuð fjögra herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin er 101,0 fm, geymsla 5,3 fm í sameign og bílskúr 16,6 fm á jarðhæð, samtals 122,9 fermetrar.Íbúðin skiptist í gott hol, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús opið inn í stofu, baðherbergi og þvottahús. Yfirbyggðar suðursvalir. Eigninni fylgir svo bílskúr og stæði í lokaðri bílageymslu. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign og einnig er sérgeymsla fyrir íbúðina í sameign.
Nánari lýsing: komið er inn í gott hol. Gott opið rými (sem áður var eldhús) sem nýtt er sem skrifstofa og leikaðstaða. Auðvelt að loka og nýta sem svefnherbergi. Innaf herberginu er svo gott þvottahús með innréttingu og opnanlegum glugga. Á svefnherbergisgangi eru tvö herbergi, lítið barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergið hefur verið endurbætt og er með upphengdu salerni. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og góðri baðinnréttingu. Stofa/borðstofa og eldhús eru í stóru opnu rými. Út frá stofu er gengið út á suðursvalir sem eru með svalarlokun. Bílskúrinn er innbyggður á jarðhæð og er í dag nýttur sem líkamsræktaraðstaða. Fyrir framan bílskúrinn er svo gott bílastæði í lokaðri bílageymslu. Möguleiki er að setja rafhleðslu við stæðið.
Endurbætur á íbúð:
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á íbúðinni og húsinu. Þar hefur meðal annars verið sett nýtt gólfefni á herbergjum, gangi, stofu og eldhúsi árið 2020 ásamt því var eldhúsið fært inn í stofu og sett ný eldhúsinrétting og eyja. Dregið var nýjir rafvírar í hluta íbúðar og nýjir ljósrofar og tenglar settir á flestum stöðum. 2025 var steinborðplata sett á eldhúsið.
Endurbætur á húsi:2017 Húsið klætt á suður, vestur og austur gafli. 2017 Glerlokun á svölum. 2018 Nýtt teppi í stigagangi. 2023 1. hæð máluð að utan, timburveggir, hurðar og steyptir veggir. 2025 skipt um járn á þaki. Það á eftir að klæða norðurhlið hússins og verið er að safna fyrir þeirri framkvæmd.
Örstutt í verslun, þjónustu, leiksskóla, skóla, sundlaug og íþróttir. Skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir. Stutt er í strætóstoppistöðvar. Næg bílastæði fyrir utan og einnig er búið að setja upp rafhleðuslustöðvar. Eign sem vert er að skoða.