Hörgshlíð 2, 105 Reykjavík er hugguleg og vel skipulögð 3ja herbergja 104,3 fermetra íbúð á 1. hæð, ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin samanstendur af 88,3 fermetra íbúð á 1. hæð og 16,0 fermetra stæði í bílageymslu í kjallara. Þá eru við íbúðina skjólgóður sérafnotaréttur suðvestan við hús. Húsið, s... Sýna meira
Hörgshlíð 2, 105 Reykjavík er hugguleg og vel skipulögð 3ja herbergja 104,3 fermetra íbúð á 1. hæð, ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin samanstendur af 88,3 fermetra íbúð á 1. hæð og 16,0 fermetra stæði í bílageymslu í kjallara. Þá eru við íbúðina skjólgóður sérafnotaréttur suðvestan við hús. Húsið, sem er 3 hæðir auk kjallara, var byggt árið 1988 og er vel staðsett miðsvæðis í Hlíðunum . Í kjallara eru auk bílageymslu, geymslur og sameiginleg hjóla og vagngeymsla.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 104,3 fm, þar af er íbúðin skráð 88,3 og bílageymsla 16,0 fm I Fasteignamat 2024 er 73.500.000,-Skv. eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin skráð 91,4 fermetrar auk 5,8 fermetra geymslu í kjallara, bílastæði í bílageymslu og sér sorpgeymslu við suðausturgafl húss.Nánari lýsingAnddyri: Gengið er inn um sérinngang í lítið anddyri. Flísar á gólfi.Gangur: Frá anddyri er gengið inn á gang þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur. Stór fataskápur og flísar á gólfum.Eldhús: Opið er inn í rúmgott eldhús frá anddyri og er eldhúsið jafnframt opið inn í stofuna. Vandaðar innréttingar og gott borðpláss. útgengi á rúmgóðan sérafnotarétt suðvestan húss. Flísar á gólfi.Stofa: Stofu hefur verið skipt upp og útbúið aukaherbergi við gluggahlið. Stofan er því lítil og nýtur aðeins birtu frá gólfsíðum eldhúsglugganum, en auðvelt er að færa eignina til fyrra horfs. Flísar á gólfum.Aukaherbergi: Frá stofu er gengið inn í aukaherbergi sem búið var til með því að skipta upp stofu. Stórir gólfsíðir gluggar til suðvesturs og útgengi á sérafnotarétt. Parket á gólfiSvefnherbergi I: Frá gangi er gengið inn í svefnherbergi I. Góðir fataskápar og parket á gólfi.Svefnherbergi II: Innar á gangi er gengið inn í svefnherbergi II. Góðir fataskápar og parket á gólfi.Baðherbergi: Innst á gangi er gengið inn i baðherbergi. Ljósar innréttingar við vask, tengi fyrir þvottavél, "labba-inn" sturta og flísar í hólf og gólf.Geymslur: Sérgeymsla í kjallara merkt 0101, samtals 5,8 fermetrar og sér sorpgeymsla við suðausturgafl húss.Bílageymsla: Í kjallara hússins er sér stæði í bílageymslu sem skráð er alls 16,0 fermetrar.Garður: Góður og skjólgóður garður suðvestan við hús. Gengið út í garðinn bæði frá eldhúsi og aukaherbergi/stofu. Frá sérafnotagarði er gengið út á snyrtilegan sameiginlegan garð fyrir allt húsið.Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sér stæði í bílageymslu í kjallara.Lóðin: er leigulóð, samtals 1.733,0 fermetrar.Íbúðin er staðsett í vinsælu hverfi í miljum Hlíðunum. Mjög góðar almenningssamgöngur í nágrenni, Hlíðaskóli í göngufæri og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir í Kringlunni.Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang eða í síma 497 7700Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.