Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja 154,4 fermetra endaíbúð með gluggum í þrjár áttir á 2. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu á verulega fallegum og eftirstóttum stað í Urriðaholti í Garðabæ. Aukin lofthæð er í íbúðinn... Sýna meira
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja 154,4 fermetra endaíbúð með gluggum í þrjár áttir á 2. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu á verulega fallegum og eftirstóttum stað í Urriðaholti í Garðabæ. Aukin lofthæð er í íbúðinni og út af stofum eru stórar yfirbyggðar svalir til suðvesturs með mjög fallegu útsýni.Allar innréttingar eru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnadóttur. Innréttingar eru allar sérsmíðaðar og frá Formus. Eldhúsinnrétting og fataskápar eru með dökkri viðarharðklæðningu frá Egger með mattri áferð. Fasteignamat fyrir árið 2023 verður kr. 82.400.000.-Lýsing eignar:Inngangur, rúmgóður, snyrtilegur teppi á stigahúsi. 2 íbúðir á hæð og er sameiginlegur gangur lokaður frá stigahúsi.. Forstofa, mjög rúmgóð parketlögð með góðum fataskápum. Rennihurð er frá forstofu og inn í íbúðina. Þvottahús / fatageymsla, innangengt úr forstofu í rúmgóða fatageymslu / búr með parketi á gólfi og þaðan gengið inn í þvottaherbergi með glugga sem er flísalagt go með góðum innréttingum og hillum. Eldhús, opið við stofu og borðstofu, parketlagt og bjart með fallegri dökkri viðarinnréttingu með undirlímdum vaski og innbyggðri uppþvottavél. Stór eyja með helluborði og hangandi háfi yfir. Í eldhúsi eru gluggar í tvær áttir og þaðan nýtur mjög fallegs útsýnis.Borðstofa, er við eldhús, parketlögð og rúmgóð með fallegu útsýni.Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum glugga og útgengi á rúmgóðar, skjólgóðar og yfirbyggðar svalir með fallegu útsýni. Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataherbergi innaf.Fataherbergi, parketlagt og með glugga, innréttingar með skúffum, fatahengi og hillur.Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, innrétting við vask og rúmgóð flísalögð sturta með sturtugleri. Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum.Á jarðhæð hússins eru:Sérgeymsla, 8,7 fermetrar að stærð, máluð gólf.Sameiginleg hjólageymsla, rúmgóð, máluð gólf og útgengi á lóð.Lóðin er fullfrágengin á vandaðan máta og aðkoma að húsinu er mjög góð með fjölda bílastæða.Húsið að utan lítur vel út og er með fallegum sameiginlegum garði. Hiti í stéttum og við aðgengi að hjólageymslu.Sameign hússins er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á mjög fallegum útsýnisstað neðst í Urriðaholtinu, þaðan sem stutt er í verslanir, veitingastaði, skóla, þjónustu og falleg útivistarsvæði.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu