***Aðeins einkaskoðanir í boði***
Seljendur skoða skipti á stærri eign í Garðabæ.
Miklaborg kynnir í einkasölu einstaklega glæsilega "penthouseíbúð'' við Holtsveg 25 í Urriðaholti í Garðabæ. Um er að ræða 181,8 fm , bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á efstu hæð með stórglæsilegu útsýni og gluggum í allar áttir. Íbúðin er sú eina á hæðinni og nýtur því fullkomins næðis, lyftan veitir beinan aðgang inn í íbúðina sem tryggir einstakan lúxus og þægindi. Eignin samanstendur af stórglæsilegu alrými með stofu og eldhúsi í opnu og björtu skipulagi, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottaherbergi og rúmgóðri forstofu. Með íbúðinni fylgja tvö bílastæði í lokuðum bílakjallara. Innanhúshönnun og lýsing íbúðarinnar er eftir Rut Káradóttur innanhúsarkítekt.
Lýsing eignar:
Lyfta opnast beint inn í íbúðina. Tvennar svalir, aðrar um 30 fermetrar að stærð með viðarklæddu gólfi, heitum potti og glerhandriði á stálprófílum og hinar um 40 fermetrar að stærð einnig með viðarklæddu gólfi og glerhandiriði á stálprófílum. Tvö sér bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgja eigninni og sérgeymsla á jarðhæð er 12,8 fermetrar að stærð. Innréttingar eru frá HTH, gólfefni eru öll frá Birgisson og eldhús- og baðtæki eru vandaðrar gerðar, innihurðir frá Birgisson eru í yfirhæð og lofthæð íbúðarinnar er yfir 3,0 metrar. Gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta íbúðarinnar, tvennar stórar svalir, þar af aðrar með heitum potti og útsýni frá eigninni er algjörlega einstakt.
Forstofa: mjög rúmgóð, björt og flísalögð með miklum gluggum, frábæru útsýni og útgengi á um 30 fermetra þaksvalir með heitum potti og glerhandriði á stálfprófílum. Frá svölum nýtur einstaks útsýnis til norðurs, vesturs og suðurs.
Hol: flísalagt.
Þvottaherbergi: flísalagt og með góðum innréttingum.
Stofa: parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum, einstöku útsýni yfir Urriðakotsvatn, að Reykjanesi, Snæfellsjökli og víðar. Úr stofu er útgengi á um 40,0 fermetra svalir til suðurs, vesturs og norðurs sem eru með þaki yfir að hluta, glerhandriði á stálprófílum og frábæru útsýni.
Eldhús: opið við stofu, parketlagt og með gluggum. Hvítar sprautulakkaðar HTH innréttingar með graníti á borðum, miklu skápaplássi, tveimur AEG ofnum, innbyggðri uppþvottavél og tvöföldum ísskáp með klakavél. Eyja með graníti á borði, spanhelluborði. Borðaðstaða er við eyju.
Gangur: parketlagður.
Baðherbergi I: stórt og með tveimur gluggum, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.
Barnaherbergi I: parketlagt og með fataskápum.
Barnaherbergi II: parketlagt með gluggum í tvær áttir og fataskápar.
Hjónasvíta samanstendur af:
Hjónaherbergi: stóru, parketlögðu með útgengi á stórar svalir til suðurs, vesturs og norðurs og með gluggum í tvær áttir.
Fataherbergi: parketlagt, gluggi og miklar innréttingar.
Baðherbergi II: með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting með graníti á borði, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.
Á jarðhæð hússins eru:
Tvö sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Rafhleðslustöð uppsett í öðru stæðinu og búið að leggja að hinu.
Sérgeymsla: 12,8 fermetrar að stærð, fremst á geymslugangi og með miklum hillum.
Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæðinni.
Staðsetningin er góð þar sem stutt er í Urriðaholtsskóla, sem er leik- og grunnskóli og leikskólann Urriðaból við göngufæri, ásamt verslun og veitingastaði. Að auki er stutt í útivistarperlur, golfvelli og frábærar göngu og hlaupaleiðir.
Bókið einkaskoðun hjá:
Kristín Avon Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-2959 eða kristinavon@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu






















































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 181,80 m² | 184.500.000 kr. 24. apríl 2026 | 165.000.000 kr. 17. september 2024 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 24.04.2026 Nánar | 181,8 m² | 1.014.851 kr. | 184.500.000 kr. |
| 13.04.2026 Nánar | 181,8 m² | 1.014.851 kr. | 184.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 17. september 2024 | 165.000.000 kr. |
| 30. mars 2021 | 3.500.000 kr. |
| 10. október 2016 | 69.900.000 kr. |
0204 ![]() | 3 | 75,20 m² | 49.900.000 kr. 27. ágúst 2021 | 55.000.000 kr. 23. mars 2022 |
0302 ![]() | 3 | 76,40 m² | 63.900.000 kr. 10. janúar 2023 | 67.000.000 kr. 30. ágúst 2024 |
0203 ![]() | 3 | 81,80 m² | 69.900.000 kr. 27. maí 2025 | 69.500.000 kr. 4. september 2025 |
0205 | - | - | - | 47.500.000 kr. 4. maí 2018 |
0206 | - | - | - | 65.700.000 kr. 4. febrúar 2022 |
0303 | - | - | - | 46.800.000 kr. 29. júní 2020 |
0306 | - | - | - | 51.000.000 kr. 22. nóvember 2018 |
0404 | - | - | - | 63.000.000 kr. 14. júní 2024 |
0305 ![]() | 3 | 95,80 m² | 79.900.000 kr. 28. júlí 2025 | 78.000.000 kr. 12. september 2025 |
0202 ![]() | 3 | 77,30 m² | 68.900.000 kr. 24. júlí 2024 | 29.900.000 kr. 8. desember 2014 |
0201 | - | - | - | 50.700.000 kr. 1. júní 2016 |
0301 ![]() | 4 | 170,70 m² | 88.900.000 kr. 1. október 2021 | 88.500.000 kr. 29. desember 2021 |
0401 | - | - | - | 59.900.000 kr. 21. desember 2016 |
0304 | - | - | - | 29.500.000 kr. 23. september 2014 |
0403 | - | - | - | 72.000.000 kr. 28. maí 2024 |
0402 ![]() | 3 | 77,10 m² | 67.900.000 kr. 18. mars 2026 | 66.500.000 kr. 29. mars 2026 |
0405 | - | - | - | 75.000.000 kr. 8. ágúst 2024 |
0406 | - | - | - | 44.265.000 kr. 26. maí 2016 |