Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Stakfell fasteignasala og Jón G. Sandholt jr kynnir í einkasölu flotta útsýnisíbúð á þriðju hæð við Holtsveg 23-25, 210 Garðabæ með bílastæði í bílageymslu. Aukin lofthæð er í íbúðinni og er hún u.þ.b 280cm. Eignin er í heild sinni 170,7m2, þar af er íbúðin... Sýna meira
Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Stakfell fasteignasala og Jón G. Sandholt jr kynnir í einkasölu flotta útsýnisíbúð á þriðju hæð við Holtsveg 23-25, 210 Garðabæ með bílastæði í bílageymslu. Aukin lofthæð er í íbúðinni og er hún u.þ.b 280cm. Eignin er í heild sinni 170,7m2, þar af er íbúðin og geymsla innan sameignar 140,7m2 og 30,6m2 útigeymslu á jarðhæð með bílskúrshurð(minni en hefðbundnar). Eignin telur þvottahús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, rúmgott eldhús, stofu/borðstofu, svalir með flottu útsýni yfir vatnið, geymslu í sameign, bílastæði í bílageymslu og 30.6m2 útigeymslu með bílskúrshurð.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Jón G. Sandholt jr. í síma 777-2288 eða , þú getur smellt hér til að fá rafrænt verðmat.Eignin er mjög björt enda eru gluggar í hverju rými fyrir utan þvottahús, útsýni allt um kring og langt í næstu byggingar.Verið er að klára framkvæmdir á sameign og ytra byrði húss þar sem verið er að gera við sprungur og mun verkið klárast skv.seljanda í sumar. Þá verður sameign máluð ásamt ytra byrði húss. Seljendur standa straum af þessum kostnaði og er stutt í að þær klárist.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.Þvottahús er með rennihurð úr forstofu og flísum á gólfi.Svefnherbergi I er með parket á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi II er með parket á gólfi og fataskáp.Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfi og innbyggðum fataskáp.Eldhús er með eyju, innréttingu í L, háf og stein á borði. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtu og glugga.Stofa/borðstofa er með parket á gólfi og aðgengi út á svalir með flottu útsýni.Geymsla í sameign er hefðbundin og telur hún 14m2.Útigeymsla með bílskúrshurð og telur hún 30,6m2.Bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni og er það merkt B02 skv. eignaskiptasamning. Geymslan er með flúorlýsingu, heitu og köldu vatni.Eins og áður kom fram er íbúðin virkilega vel staðsett í húsinu og er óskert útsýni nánast til allra átta. Það er langt í næstu byggingar og gluggar á nánast öllum rýmum sem gerir eignina mjög bjarta. Útigeymslan er einnig vel staðsett og er á jarðhæð nálægt umferðargötu og auðvelt aðgengi með bíl upp að geymslunni, hægt geyma t.a.m mótorhjól, sleða og hentugt fyrir iðnaðarmann að geyma verkfæri o.s.f.r.Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Jón G. Sandholt jr löggiltan fasteignasala í síma 777-2288 eða Nánari byggingarlýsing:Frágangur utanhússHúsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt filt múrað og málað. Stigagangar eru einangraðir að utan og klæddir sléttu áli með innbrenndum lit. Gluggar eru málaðir samlímdir trégluggar, ísteyptir nema þar sem þeir koma í utanhúss klæðningu við stiga- og lyftuhús. Útihurðir eru lakkaðar og með 3ja punkta læsingu. Svalahandrið eru úr ryðfríu stáli og pólyhúðuð. Svalagólf skilast með steyptri yfirborðs áferð. Bílageymsla er sílanhúðuð sjónsteypa. Þak er staðsteypt, vatnsvarið með þremur lögum af eldsoðinn tjörupappa. Þar ofan á einangrun, jarðvegsfilt og sjávarmöl og holtagras er endanlegt yfirborð. Húsið verður málað ljósum litum með litbrigðum á stigagöngum og handriðum að vali arkitekta.SameignAnddyri eru flísalögð, önnur gólf og stigar í stigagöngum eru teppalögð slitsterku teppi. Handrið er málað. Í anddyri er dyrasími og póstkassar. Rúmgóðar og vandaðar lyftur eru í báðum stigahúsum.Bílageymsla, veggir og loft með steyptri áferð ómeðhöndluð, gólf vélslípuð. Geymslur, tæknirými og geymslugangar verða frágengin á eftirfarandi hátt: Aukin lofthæð er í þessari íbúð ca 280 cm. Allar gólfplötur eru að lágmarki 22 cm þykkar sem veitir betri hljóðeinangrun milli hæða. Útveggir eru einangraðir að innan síðan tvöföld grind klædd tvöföldu gipslagi til að auka hljóðvist innan íbúða. Allir milliveggir eru klæddir fjórföldu gipslagi á blikkgrind þ.e 2+2. Rakahelt gips er í votrýmum.Hurðir og innréttingarEru yfirfelldar spónlagðar með eik af vandaðri gerð og með yfirhæð (210 cm). Fataskápar og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Parka ehf. Eldhúsinnréttingar eru frá Innex.AnnaðVélræn loftræsting er í lokuðum rýmum. HönnunAðalhönnuðir eru Úti og Inni arkitektar ehf, burðarþols og lagnahönnun er hjá Hnit ehf verkfræðistofu og raflagnahönnun hjá Verkhönnun ehf. -----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila / Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.