Einstök staðsetning og glæsilegt 289,3 fm fimm herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr við Bessastaðatjörn í Garðabæ á einni hæð. Einstakt útsýni. Húsið er til afhendingar strax. Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 237,1 og 52,2 fm bílskúr. Frábær staðsetning alveg við nýja golfvöllinn og tjörnina. Hátt er til lofts, gólfsíðir gluggar og gólfhiti er í húsinu. Frábært skipulag og staðsetning á húsinu og falleg útivistarsvæði allt um kring. Húsið stendur á stórri eignarlóð.
Nánari lýsing: Húsið skilast eins og eignin er við skoðun málað í ljósum lit og tilbúið til innréttingar að innan. Fullbúið að utan, skjólgóður og stór garður. Góð aðkoma er að húsinu. Eignin er til afhendingar strax.
Frábært skipulag sem hentar vel fyrir fjölskyldufólk og alla þá sem vilja gott og vandað einnar hæðar hús á þessum frábæra stað.
Nokkur atriði sem rétt er að nefna : - Staðsteypt hús með áltré gluggum. - Klætt og einangrað að utan - Aukin lofthæð í öllu húsinu - Stór eignarlóð - Innsteypt loftskiptikerfi - Aukinn hæð í hurðargötum - Mikið að lagnaleiðum sem gerir möguleika á flestum rafkerfum - Friðað bessastaðanes sem aldrei verður byggt á - Hjónasvíta með sér baði - Óhindrað útsýni sem fá orð fá lýst.