STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Fallega, bjarta og vel skipulagða 68,8 fm 2ja herbergja íbúð með stæði í bílgeymslu við Holtsgötu 3, 101 Reykjavík. Um er að ræða mjög vel með farna eign á eftirsóttum stað í miðborginni þar sem stutt er í helstu þjónustu, verslanir, kaffihús, skóla, leikskóla og fjölbreytta útivist.Nánar tiltekið eign við
Holtsgötu 3, 101 Reykjavík, ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi.
Fastanúmer eignar: 228-8251.
Laus við kaupsamning.
Ásett verð: Krónur 81.800.000.-
Smelltu hér til að skoða myndband um eignina
Smelltu hér til að sækja söluyfirlitSölupunktar eignar:• Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð
• Mjög vel með farin eign
• Stæði í bílgeymslu
• Sérgeymsla fylgir eigninni
• Eftirsótt staðsetning í 101 Reykjavík
Eignin skiptist í:Forstofu/hol, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, svalir, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Nánari lýsing:Forstofa/hol: Komið er inn í hol sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar með sérsmíðuðum fataskáp.
Eldhús: Eldhús er aðskilið með glugga, snyrtilegri innréttingu, gaseldavél frá Miele, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, gott skápaplás og vinnuaðstaða.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum sem hleypa inn góðri dagsbirtu. Gott rými er fyrir bæði setu- og borðstofu. Úr stofu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkar og sturtuaðstöðu, innréttingu og upphengt salerni, gluggi.
Svalir: Útgengt er á stórar flísalagðar svalir frá stofu.
Sérgeymsla: góð geymsla fylgir eigninni.
Sameign / hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Stæði í bílgeymslu: Eigninni fylgir stæði í bílgeymslu, farið er inn í sérstaka bílalyftu, eykur þægindi í daglegu lífi.
Vandaðar innréttingar, nýlega slípað parket. Staðsetning:Staðsetning eignarinnar er mjög góð við Holtsgötu í 101 Reykjavík. Stutt er í miðborgina, verslanir, kaffihús, veitingastaði, skóla, leikskóla og helstu þjónustu. Þá eru fallegar gönguleiðir og fjölbreytt útivist í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, Löggiltur fasteignasali , í síma 661 7788 eða á netfanginu bo@stofnfasteignasala.is.Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.