Holtagata 8 - Björt og falleg hæð ásamt risi á góðum stað miðsvæðis á Akureyri - Stærð 123,9
Stutt í miðbæinn, sundlaug Akureyrar, grunnskóla sem og leikskóla.
*** Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning***Eignin skiptist með eftirfarandi hættiNeðri hæð: forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, herbergi og baðherbergi
Efri hæð: þrjú svefnherbergi, baðherbergi og hol.
Kjallari: sameiginlegt þvottahús og geymsla.
Neðri hæð: Forstofa: Harðparket á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Harðparket á gólfi, ljós innrétting og ofn með helluborði. Úr eldhúsi er gengið niður í sameiginlegt þvottahús og geymslu.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð og björt, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Dúkur á gólfi og veggjum. Ljós innrétting, baðkar og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Efri hæð:Þrjú
svefnherbergi eru í risinu öll rúmgóð, í einu herberginu er rúmgóður fataskápur. Í dag er eitt herbergið notað sem sjónvarpsherbergi og úr því er gengið út á svalir til austurs með mjög góðu útsýni.
Hol er rúmgott og bjart með opnanlegum þakglugga. Upptekið loft er í risi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, sturtuklefi og innrétting. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Annað:- Efri hæð/ris byggt ofan á húsið 1996-1998.
- Góður sólpallur er við suðurenda hússins.
- Rúmgóðar svalir með útsýni í austur.
- Geymsluskúr á lóð.
- Skólplagnir endurnýjaðar 2001 og drenað nokkrum árum fyrr.
- Ekki er til eignaskiptasamningur um eignina.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.