Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu einstaklega vel skipulagt og glæsilegt einbýlishús á einni hæð við Hólmatún. Um er að ræða fallegt fjölskylduhús með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum auk þess sem útbúin hefur verið sérlega snyrtileg íbúð í hluta bílskúrs.Húsið stendur á rólegum og barnvænum stað innst í botngötu í fallegu og friðsælu hverfi á Álftanesi, í stuttu göngufæri við náttúru, strandlengju og fjölbreyttar útivistarleiðir. Stórt og snyrtilegt bílaplan er framan við húsið og skjólgóðir sólpallar ásamt fallegum grónum garði skapa einstaklega notalegt útisvæði.
Komið er inn í bjart og fallegt anddyri með stórum vönduðum flísum á gólfi. Flísarnar eru á nánast öllum sameiginlegum rýmum og gefa húsinu fallegan heildarsvip. Anddyrið er með góðum fataskápum. Innaf anddyri er rúmgott þvottahús með flísum á gólfi með vönduðum innréttingum og miklu skápaplássi. Gestasnyrting er flísalögð og snyrtileg.
Meginrými hússins hefur nýlega verið endurnýjað og er einstaklega glæsilegt, opið og bjart. Þar tengjast saman stofa, borðstofa og stórglæsilegt eldhús sem myndar sannkallað hjarta heimilisins. Innréttingar eru sérhannaðar af Berglindi Berndsen innanhúsarkitekt og smíðaðar af Hegg. Rýmið einkennist af fallegri hönnun og vönduðu efnisvali. Stofa og borðstofa njóta mikillar birtu frá stórum gluggum og þaðan er útgengt út á skjólgóðan sólpall.
Eldhúsið er sérsmíðað með stórri eyju, miklu skápaplássi, innbyggðri lýsingu og hljóðvistarlausnum. Vönduð Siemens tæki, stór ofn, ofn/örbylgjuofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél ásamt stórum tvöföldum ísskáp. Frá eldhúsi er vængjahurð út á sólpall sem tengir saman inni- og útirými á afar skemmtilegan hátt. Borðplata quartzite frá Granítsteinum.
Á svefnherbergisgangi eru fjögur rúmgóð svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Hjónaherbergið er með stórum nýlegum fataskáp sérsmíðaður frá Hegg og svo eru skápar í tveim barnaherbergjanna. Baðherbergið er stórt og flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa og fallegri innréttingu.
Í hluta bílskúrs hefur verið útbúin sérlega falleg íbúð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í opið alrými með stofu og eldhúsi, fullbúið baðherbergi með sturtuklefa og afstúkað svefnrými með fataskáp. Parketflísar eru á gólfum og nýtist íbúðin afar vel til útleigu, fyrir ungmenni eða sem aðstaða fyrir gesti. hluti bílskúrsins er svo nýttur sem geymsla.
Garðurinn er stór, gróinn og einstaklega skjólsæll með fallegri verönd og litlum garðskúr sem hentar vel fyrir garðáhöld, reiðhjól eða til leikja fyrir börnin.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi. Öll gólfefni hússins voru endurnýuð árið 2022. Nýlega var húsið málað að utan og skipt hefur verið um flesta glugga, að undaskildum þeim sem voru metnir í lagi. Nýlega var einnig skipt um aðalhurð hússins og útihurð inn í aukaíbúðina.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.