Nýtt á skrá! Hólavað 63 í Reykjavík - Glæsilegt 5 herb. endaraðhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 5 herbergja endaraðhús á einni hæð á fjölskylduvænum stað við Hólavað 63 í Reykjavík. Húsið er alls 168,9 fermetrar að stærð og þar af 26,1 fermetra bílskúr sem er búið að breyta að hluta í fjórða svefnherbergið. Gólfhiti er í öllu húsinu og mikil lofthæð yfir stofum og eldhúsi. Útgengi úr stofu annars vegar á rúmgóða hellulagða afgirta verönd til suðurs og hins vegar í tyrfðan bakgarð hússins. Hellulögð stétt/bílastæði fyrir framan hús með snjóbræðslu. Einnig eru sameiginleg gestastæði í götunni á móts við húsið.
Húsið skiptist í fjögur svefnherbergi, opið alrými sem skiptist í eldhús, borðstofu og stofu, gestasnyrtingu, baðherbergi, sjónvarpsrými, þvottaherbergi og bílskúr (sem er í dag fjórða svefnherbergið og geymsla að hluta). Stór afgirt hellulögð verönd til suðurs og tyrfð baklóð til norðurs. Rúmgott risloft/geymsluloft sem er u.þ.b. 20 fermetrar að grunnfleti (ekki full lofthæð).Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Norðlingaholti í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla og leikskóla. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni (M.a. Rauðavatn, Heiðmörk, Hólmsá og Elliðavatn). Matvörubúð, apótek og bensínstöð innan hverfis.Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni, vaskur og gluggi til suðurs.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá InnX, granít steini á borðum og undirfelldum vaski. Stál Electrolux bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Mikil lofthæð er yfir eldhúsi með innfelldri lýsingu í loftum. Flísar á milli skápa og gluggar til suðurs.
Stofa: Er stór, með parketi á gólfi og mikilli lofthæð með innfelldri lýsingu í loftum. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs og norðurs. Útgengi á afgirta hellulagða verönd til suðurs og í tyrfða bakgarð hússins til norðurs.
Sjónvarpsstofa: Er opin að hluta við stofu. Parket á gólfi og aukin lofthæð.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Falleg og góð innrétting við vask með steini á borðum. Flísalögð sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til vesturs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi. Góð innrétting, tenglar fyrir þvottavél og þurrkara og gluggi til vesturs. Gengið er upp í risloft/geymsluloft frá þvottaherbergi.
Geymsluloft: Er staðsett fyrir ofan þvottaherbergi. Fellistigi frá þvottaherbergi. Ekki er full lofthæð og er grunnflötur u.þ.b. 20 fermetrar.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og skápum. Gluggar til norðurs og útgengi á baklóð.
Svefnherbergi II: Er stórt, með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi IV: Er stórt og var bílskúr nýttur að hluta fyrir herbergi. Flísar á gólfi, skápar og gluggi til vesturs.
Geymsla: Er huti af bílskúr. Sérinngangur að framanverðu. Flísar á gólfi.
Bílskúr: Er 26,1 fermetrar að stærð og er nýttur í dag sem svefnherbergi IV og geymsla sbr. lýsing hér að ofan.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.