Fasteignasalan Hvammur – 466-1600 – gunnar@kaupa.is
Hólatún 18 eh. – Björt og mjög vel nýtt 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð með sérinngangi – stærð 99,0 m²Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:Forstofan er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Stofan er í opnu rými með eldhúsi, bjart og rúmgott rými með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með eikarinnréttingu og parketi á gólfi. Úr eldhúsi er gengið út á steyptar vestur svalir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, vegghengdu wc, baðkari með sturtutækjum og handklæðaofni.
Geymslan er með flísum á gólfi og miklu hilluplássi.
Þvottahúsið er inn af geymslu, þar eru flísar á gólfi, ljós bekkplata og stór vaskur.
Sameiginleg geymsla með neðrihæð er undir stiga.
Annað:
- Hiti er í stigapalli fyrir framan sem og tröppum
- Frábært útsýni er úr íbúðinni með gluggum til allra átta
- Sameiginlegur hleðslustaur er fyrir íbúa hússins Hólatún 12-18
- Sérinngangur í íbúð
- Sameiginleg geymsla fylgir eigninni
- Stutt er í leik- og grunnskóla, golfvöllinn sem og náttúruparadísina Naustaborgir
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.