Íbúð
5 herbergja hæð skiptist í forstofu, 3 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús, þvottahús, baðherbergi og bílskúr. Opin, björt og með gott flæði á milli stofu, eldhús og herbergja. Frábær staðsetning nálægt fjölbreyttri þjónustu.
Stofa
Tvær samliggjandi rúmgóðar, bjartar og fallegar stofur með harðparketi á gólfi. Útgengt út á góðar vestur svalir.
Eldhús
Hvít filmuð eldhúsinnrétting með góðu skúffu- og skápaplássi, nýlegu spanhelluborði og háf, gráum mósaík flísum á vegg, harðparketi á gólfi og borðkrók. Þvottahús innan af eldhúsi.
Svefnherbergi
Barnaherbergi I: Rúmgott með harðparketi. Barnaherbergi II: Harðparket á gólfi, innbyggður fatskápur. Hjónaherbergi: Rúmgott með innbyggðum fataskápum með miklu plássi og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi
Fallega endurnýjað baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf með steingráum flísum, sérhannaðri innréttingu með skúffum, vask og sérsmíðuðum bekk frá Fanntofell, skápum með speglafrontum, upphengt klósett, flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri og handklæðaofn. Blöndunartæki frá Tengi við handlaug og innfelld tæki í vegg við sturtu.
Þvottahús
Þvottahús með nýlegri hvítri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi.
Geymsla
Stór fataskápur með spegla rennihurðum í forstofu. Innbyggðir fataskápar í svefnherbergjum.
Bílskúr
Rúmgóður 38,9 fm bílskúr með sér innkeyrslu og miklum möguleikum.
Garður
Stór sameiginlegur afgirtur og tyrftur garður.
Svalir/þak
Góðar suðursvalir. Rúmgóður sameiginlegur sólpallur.
Félagssvæði
Stór sameiginlegur afgirtur og tyrftur garður. Rúmgóður sameiginlegur sólpallur.
Önnur herbergi
Forstofa með steingráum flísum og stórum fataskáp. Hol með harðparketi tengir herbergi.