Miklaborg kynnir: Björt og rúmgóð sérhæð á tveimur hæðum með aukaíbúð í kjallara og rúmgóður bílskúr í góðu þríbýlishúsi þar sem stutt er í alla þjónustu. Sundlaug Vestubæjar og Melabúðin í næsta nágrenni og Kaffi Vest í næsta húsi. Möguleiki er að opna milli hæða og kjallara þannig að íbúðin nýtist sem eitt rými fyrir stórfjölskyldu. Alls 240 fm.
NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri og þaðan í hol með fallegum stiga á efri hæð. Á vinstri hönd er rúmgott forstofuherbergi (er eldhús á teikningum) . Gestasalerni er undir stiga. Nýleg eldhúsinnréttingu með eldunareyju sem skilur eldhús frá borðstofu. Tengi fyrir uppþvottavél er í eldhúsi og nýleg tæki. Stofa og borðstofa eru samliggjandi og er fallegur gluggi í suður. Gengið eru upp fallegan, upprunalegan stiga á efri hæðina. Efri hæðin skiptist í þrjú svefnherbergi og eru tvö þeirra sérlega rúmgóð.
Á efri hæðinni er komið upp í hol sem leiðir þig í allar vistarverur hæðarinnar. Tvö góð barnaherbergi ásamt mjög góðu hjónaherbergi með útengt á svalir í suður. Þrjú baðherbergi eru á hæðinni, eitt með salerni, annað með sturtu og þriðja með baðkari og tveimur vöskum. Lítið þvottahús er einnig á hæðinni. Í kjallara er góð þriggja herbergja íbúð með sérinngangi en hún er skráð undir sama fastanúmeri og hæðin. Íbúð í kjallara skiptist í anddyri, eldhús sem er opið inn í stofu, rúmgott hjónaherbergi og inn af því er gott barnaherbergi. Lítið þvottahús er einnig inn af anddyri. Rúmgóður bílskúr með gluggum fylgir eigninni. Stór og skjölsöm lóð er sunnan og austan megin við húsið.
Frábær eign á frábærum stað í Vestubænum með möguleika á útleigu eða til að halda utan um stóra fjölskyldu.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 23074 eða olafur@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu



















































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 18.06.2026 Nánar | 240,1 m² | 747.605 kr. | 179.500.000 kr. |
0101 | - | - | - | 68.000.000 kr. 25. mars 2020 |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 30. apríl 2025 | 33.000.000 kr. |
| 27. júlí 2022 | 145.700.000 kr. |
| 26. apríl 2010 | 59.000.000 kr. |
0101 ![]() | 5 | 240,10 m² | 179.500.000 kr. 18. júní 2026 | 33.000.000 kr. 30. apríl 2025 |
0001 | - | - | - | 22.800.000 kr. 21. maí 2014 |