Lögeign kynnir eignina Höfði 20, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 02-03.
Um er að ræða vel skipulagða, tveggja svefnherbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi byggt árið 1969. Árið 2015 var húsið einangrað og klætt að utan með bárujárni og tveimur árum áður (árið 2013) var þakjárn endurnýjað. Íbúðin er 82,1M² og er björt og með svölum með flottu útsýni.
Nánari lýsing: Forstofa, geymsla, stofa, tvö svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.Komið er inn í flísalagða
forstofu, inn af forstofu er bæði geymsla sem er flísalögð og hol.
Stofan er parketlögð og er í opnu rúmgóðu rými með eldhúsinu, útgengt er út á svalir með flottu útsýni úr stofunni. Í eigninni eru
tvö svefnherbergi sem eru bæði staðsett í holinu og eru bæði með fataskáp.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, nýr bakarofn og helluborð ásamt nýjum búrskáp sem er góð viðbót við innréttinguna.
Baðherbergið er með sturtubaðkari, hvítri vaskainnréttingu, hvítum skáp, wc og tengi fyrir þvottavél.
Að utan:Bílastæði er fyrir utan eignina og sem er malbikað. Skipt var um þakjárn á húsinu árið 2013 og var allt húsið einangrað og klætt að utan árið 2015. Lekavandamál voru í eigninni og voru þau talin tengjast leka á baðherbergi á efri hæð. Eigandi hefur ekki orðið var við leka síðan hús var klætt að utan og farið var í framkvæmdir á baðherbergi upp. Mögulegum kaupendum er þó bent á að kynna sér þetta vel.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á