Lögeign kynnir eignina Höfðabrekka 11, 640 HúsavíkUm er að ræða 80,5 M² íbúð með tveimur svefnherbergjum í tvíbýlishúsi í Höfðabrekku. Íbúðin er hálf niðurgrafin að hluta og innra skipulag skiptist í forstofu, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Ganga þarf niður nokkrar tröppur að utan til að komast að inngangi eignarinnar.
Nánari Lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu er bæði geymsla og gangur. Í eigninni eru tvö svefnherbergi sem eru á móti hvort öðru. Baðherbergið er nýuppgert þar sem sett var flísar í hólf og gólf, "walk in" sturta, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, hvít vaskainnrétting og handklæðaofn. Eldhúsið er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum og við endan á innréttingu er borðkrókur. Stofan er staðsett í enda og er rúmgóð og nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa.
Að utan: Gróinn garður að aftan verðu sem er í sameign og bílastæði að framan.
Annað
Baðherbergið var nýverið endurnýjað
Skipt var um gler í húsinu fyrir nokkrum árum.
Eignaskiptayfirlýsing er til fyrir húsið og skv. henni er eignarhlutur íbúðar í húsinu 38,95% og lóðarskipting í sama hlutfalli, sólpallur S-megin skiptist þó jafnt.
Forkaupsréttur er í gildi á milli íbúa í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á