*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og BYR fasteignasala kynnir HNJÚKAMÓI 4 ÍBÚÐ 103, Ölfusi. Ný fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð, góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir sta... Sýna meira
*** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA ***Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og BYR fasteignasala kynnir HNJÚKAMÓI 4 ÍBÚÐ 103, Ölfusi. Ný fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð, góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ VEITIR HÓLMAR BJÖRN s. 893-3276.**EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU, fullbúin án megin gólfefna. **ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR FEBRÚAR 2025. **Íbúðin er 94,7 m² þar af geymsla 5,1 m² samkvæmt skráningu HMS.**Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar, geymsla.MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - SMELLIÐ HÉR - FYRIR UPPLÝSINGAR UM HLUTDEILDARLÁN.Í Móabyggð rís ný lágstemmd byggð tveggja hæða fjölbýlishúsa, allar íbúðir hafa sér inngang og sér bílastæði með möguleika á uppsetningu hleðslustöðva. 6-8 íbúðir eru í hverju húsi.Nánar um íbúð: Anddyri með tvöföldum fataskáp.Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á verönd frá stofu. Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum. Skúffur með mjúklokun. Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti.Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með HTH fataskáp yfir heilan vegg. Barnaherbergi með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðarBaðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavélar er á baðherbergi.Þvottahús innan íbúðar, gluggi.Sérgeymsla er í sameiginlegu geymslurými.Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja að bílastæðum. Nánar um húsið. Hnjúkamói 4 er sex íbúða tvílyft hús. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru þrjár íbúðir og þrjár geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum.Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign í sambærulegu húsi frá sama verktaka og eru því eingöngu til viðmiðunar.Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið . ----------------------------------------------------------Heimasíða Helgafells fasteignasöluFacebook síða Helgafells- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.