Íbúð
Íbúðin er staðsett í nýbyggðu fjölbýli með sér inngangi. Hún er 70,5 m², skiptist í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Stofa
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt út á svalir frá stofu.
Eldhús
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, melamine filma á skápum, skúffur með mjúklokun. Heimilistæki eru af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi, stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti.
Svefnherbergi
Tvö svefnherbergi, bæði með HTH fataskápum sem ná upp í loft. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt með krómuðum grindum.
Baðherbergi
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Sturtuhorn flísalagt með 30x60 flísum. Upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn.
Þvottahús
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Geymsla
Sér geymsla er í sameiginlegu geymslurými.
Svalir/þak
Útgengt er út á svalir frá stofu.
Félagssvæði
Sameiginleg bílastæðalóð með lagnaaðstöðu fyrir rafhleðslustöðvar. Útivistarsvæði og leiksvæði milli bygginga.
Tæki
Heimilistæki af AEG gerð: spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi, gert ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti.
Svæði
Miðsvæðis í Þorlákshöfn, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Malbikuð bílastæði og gestastæði á svæðinu.
Efni
Útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólfum eru staðsteypt. Þak viðsnúið með pvc dúk, klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta.