Hólmar Björn Sigþórsson löggildur fasteignasala og Helgafell fasteignasala og kynna í einkasölu Klettamóa 9 íbúð 101, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða nýlega og fallega 3ja herbergja endaíbúð á 2 hæð með sérinngang í Móabyggð sem staðsett er miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla almenna þjónustu og útivist og ýmisskonar afþreyingu. Birt stærð eignar er 80.5 fm og þar af er íbúðarhluti 75.2 fm og geymsla 5.3 fm samkvæmt skráningu HMS.
EIGN Á GÓÐU VERÐI - FRÁBÆR FYRSTU KAUP. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu / borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi og geymsla sem staðsett er í sameign.
Nánari lýsing:Anddyri: Með góðum góðum fataskáp, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými með eldhúsi, rúmgóð, útgengt er út á 8.6 fm vestursvalir (plastflísar á svölum), parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými með stofu, með HTH innréttingu, AEG keramik helluborð og bakaraofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með hvítum HTH fataskápum, parket á gólfi
Svefnherbergi: Gott með hvítum HTH fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Með fallegri baðinnrétting með handlaug í borði, walk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, flísalagt gólf og hluti veggja. Innrétting og tengi fyrir þvottavélar og þurrkara.
Sérgeymsla: 5,3 fm sérgeymsla (merkt 204) er í sameiginlegu geymslurými á efri hæð hússins.
Bílastæði: Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af bílastæði nr. 20 á bílastæðalóð BL3
á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggur í stæðið og er komin staur fyrir rafhleðslustöð. Rafhleðslustöð er komin í stæðið og fylgir með.
Gardínur: Sérsniðnar gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum.
Staðsetning: Smellið hér.Nánar um húsið.Hnjúkamói 12 er sex íbúða tvílyft hús. Á hvorri hæð eru þrjár íbúðir og þrjár geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk.
Falleg nýleg eign - Tilvalin fyrstu kaup - Mjög góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn - Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is. Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í september næstkomandi opnar nýr leikskóli í Þorlákshöfn sem mun bera nafnið Hraunheimar. Hraunheimar er fjögurra deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.