Eignin féll á fjármögnunarfyrirvara og er komin aftur í sölu.
Opið hús fimmtudaginn 12. júní frá kl 17:30-18:00
Miklaborg kynnir: Til sölu séreignarhús á besta stað í suðurhlíðum Kópavogs. Um er að ræða tengihús á einni hæð skráð 91,8 fm með sér garði og sér bílastæðum á lóð. Eignin skiptist upp í stofu með arni og eldhús í opnu rými, 2-3 svefnherbergi en búið er að sameina tvö þeirra í eitt, baðherbergi og þvottahús. Eignin er nokkuð mikið endurnýjuð að innan og stór sólpallur er í suður er út frá stofu. Falleg eign á góðum stað í Kópavogi.
Forstofugangur með fatahengi og innréttingu með skúffum. Fremst er gott þvottahús með nýlegum innréttum. Baðherbergi var nýlega uppfært ýlegt og gólf og veggir flísalagðir, góð innrétting með vask og efri skápum og gólfsturta. Alrými skiptist í eldhús með nýlegri innréttingu, stofu með arni í miðjunni og litla borðstofu við útgang út á sólpall. Svefnherbergin eru tvö en voru áður þrjú, hjónaherbergi er með skápum. Geymsluris er yfir stórum hluta hússins og er aðgengi þangað í gegnum fellistiga í lofti frá gangi. Nýlegt parket er á húsinu en flísar á forstofu og baðherbergi en þar er gólfhiti. Um 50 fm sólpallur með skjólveggjum er út frá borðstofu. Góður garður sér garður sem er vel gróin og skjólsæll, þar er geymsluskúr sem fylgir með. Tvö einkabílastæði eru fyrir framan húsið á lóðinni.
Upplýsingablað seljanda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni. Ekkert húsfélag er starfandi um eignina.
Spennandi eign á einni hæð á góðum stað.
Nánari upplýsingar gefur
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu




















| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 4 | 91,80 m² | 92.900.000 kr. 12. júní 2025 | 93.000.000 kr. 7. júlí 2025 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 12.06.2025 Nánar | 91,8 m² | 1.011.983 kr. | 92.900.000 kr. |
| 06.06.2025 Nánar | 91,8 m² | 1.011.983 kr. | 92.900.000 kr. |
0101 ![]() | 6 | 189,20 m² | 125.000.000 kr. 16. mars 2026 | - - |