Fasteignasalan Miðborg kynnir fallega 68,1 fm. 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á neðri hæð í fallegu tvíbýlishúsi á einstökum stað, innst í botnlanga í "nýju" Suðurhlíðum Kópavogs. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og sér- þvottahús. Bílastæði er við inngang og einnig eru stæði innst í botnlanganum. Fallegt og gróið umhverfi mót suðri og stutt í fallegar gönguleiðir og útivist, sem og alla þjónustu í næsta nágrenni.Nánari lýsing: Komið er á flísalagða
forstofu með fataskáp.
Holið er parketlagt. Parketlögð
stofa, björt og rúmgóð, gluggar á tvær hliðar.
Eldhúsið er parketlagt, með viðarinnréttingu, Span-helluborði, blástursofni og aðstöðu fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og tveir gluggar í eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt, með baðkari og sturtuhaus, innréttingu og glugga.
Svefnherbergið er parketlagt og með 3x fataskápum og tveimur gluggum.
Sér þvottahús/geymsla innan íbúðar, flísar á gólfi, skápar og hillur.
Eldhúsinnrétting og parket var endurnýjað ca. 2008.
Eldavél og bakarofn var endurnýjað 2022 og einnig sett nýjar borðplötur í eldhúsi.Einstakur staður innst í botnlanga, stutt í útivist og gönguleiðir, sem og alla þjónustu. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.