Nýtt á skrá! Hlíðarbyggð 35 Garðabæ - Frábært og mikið endurnýjað fjölskylduhús með studioíbúð inn af bílskúr.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt, vel skipulagt og bjart 194,0 fermetra raðhús með aukaíbúð/studioíbúð og bílskúr við Hlíðarbyggð 35 í Garðabæ. Glæsilegar verandir beggja vegna við húsið þar sem sólar nýtur frá morgni til kvölds. Heitur pottur (hitaveitu) er staðsettur á verönd í bakgarði. Hellulögð bílastæði (rúmar fjórar bifreiðar) fyrir framan hús. Snjóbræðsla undir stétt að húsi og hluta af bílastæðum (fyrir framan bílskúr).
Aðalhæð skiptist í: Forstofu, sjónvarpsstofu með útgengi í bakgarð, rúmgott eldhús með borðplássi, stofu sem rúmar vel setustofu og borðstofu, svefnherbergisgang, hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Neðri hæð skiptist í: Bílskúr og fyrir innan bílskúr er góð studioíbúð sem skiptist í opið rými sem nýtist sem stofa/svefnpláss (tengingar fyrir eldhúsi til staðar) og baðherbergi.
Eignin hefur verið endurnýjuð töluvert á undanförnum árum. Þak var endurnýjað á húsinu fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Á sama tíma var útidyrahurð, hurð á studioíbúð (sem liggur í út í bakgarð) og báðar rennihurðar (frá stofu og sjónvarpsstofu) endurnýjaðar. Búið er að endurnýja alla glugga á austurhlið hússins. Skólplagnir voru myndaðar nýlega og metnar í lagi út frá þeirri skoðun. Þá er búið að endurnýja eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, innihurðir o.fl. innanhús.
Nánari lýsing:Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi, skápum og rennihurð.
Sjónvarpsherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, gluggum til austurs og útgengi um rennihurð í bakgarð/stóra verönd.
Eldhús: Hefur verið endurnýjað á smekklegan máta. Gegnheilt parket á gólfi og falleg hvít innrétting með steini á borðum. Undirfelldur vaskur, innb. kæliskápur, innb. uppþvottavél, AEG stál bakaraofn, AEG spansuðu helluborð og vifta. Gott borðpláss er í eldhúsi og gluggar til norðurs.
Stofa: Er rúmgóð með gegnheilu parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Rennihurð út á verönd fyrir framan hús.
Þvottaherbergi: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og innrétting með miklu skápaplássi, vinnuborði og vask. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggar til austurs og norðurs. Fellistigi upp á geymsluloft fyrir ofan þvottaherbergi.
Svefngangur: Með gegnheilu parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til vesturs.
Svefnherbergi I: Með gegnheilu parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með gegnheilu parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað og mjög fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og flísalögð sturta með glerþili og innb. blöndunartækjum. Falleg innrétting við vask með steini á borðum, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til austurs.
Bílskúr: Með bílskúrshurð og inngangshurð. Hellulögð bílastæði fyrir framan með snjóbræðuslu. Inn af bílskúr er studioíbúð/aukaíbúð.
Studioíbúð/aukaíbúð: Er staðsett fyrir innan bílskúr. Flísar á gólfi og gluggar til norðurs og austurs. Gott alrými sem rýmar vel setustofu og stofu/eldhús. Endurnýjuð hurð frá studioíbúð í bakgarð hússins. Lagnir til staðar fyrir eldhúskrók. Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta, upphengt salerni, innrétting við vask og útloftun.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Hlíðarbyggð í Garðabæ þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, íþróttasvæði auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.