VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt endaraðhús, Hlaðhamra 42, 112 Reykjavík.
Eignin er samtals 172,20 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Íbúðin er 144,50 m² að stærð og bílskúrinn er 27,7m².
Eignin er á tveimur hæðum og telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, sólskála, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og bílskúr. Neðri hæð er skráð 111 m² og efri hæð er skráð 33,5 m².
Hellulagt bílaplan við malbikaða innkeyrslu og snyrtileg aðkoma að húsinu.
Útgengt er frá sólstofu í skjólgóðan suðurgarð.
Frábær staðsetning innst í botnlanga með leik- og grunnskóla í göngufæri.
Sjá staðsetningu hér.Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri með flísum á gólfi.
Komið er inn í
hol sem leiðir að tveimur svefnherbergjum, alrými, baðherbergi/þvottahúsi og stiga upp á efri hæð.
Svefnherbergin á jarðhæðinni eru
tvö, bæði með tvöföldum fataskápum og gluggum til norðurs.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhús hefur verið opnað og komið var fyrir stórri eldunareyju með góðu skápaplássi, helluborði og yfir hangir loftháfur. Eldhúsinnrétting hefur sömuleiðis verið endurnýjuð, gott skápapláss, gert ráð fyrir vatnstengdum tvöföldum ísskáp, ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél.
Borðstofa/stofa eru með eldhúsi í opnu alrými. Upptekið loft, bjart og fallegt rými. Þar fyrir utan er 9 m²
sólskáli en þaðan er útgengt í suðurgarð.
Baðherbergi og
þvottahús voru áður tvö rými en milliveggur var feldur og rýmin sameinuð í eitt rúmgott baðhefbergi með þvottaaðstöðu. Rúmgóð walk-in sturta, upphengt wc, innrétting með handlaug, tengi fyrir þvottavél og pláss fyrir þurrkara bak við rennihurðar.
Stigi upp á efri hæð er teppalagður.
Efri hæð:Hjónaherbergi er með lausum fataskápum, glugga til austurs og þakglugga. Inn af hjónaherbergi er mikil geymsla undir súð.
Svefnherbergi án fataskáps en þar er einnig þakgluggi.
Garður er á þrjá vegu enda um endahús að ræða.
Bílastæði á lóð og við sameiginlega innkeyrslu.
Bílskúr með máluðu gólfi, rafmagnsopnari á bílskúrshurð.
Geymsluloft yfir hluta bílskúrs. Útgengt út um gönguhurð á bak enda bílskúrs.
Gólfefni íbúðar eru:Flísar á anddyri, sólskála og baðherbergi.
Parket á svefnherberjum, holi og alrými.
Nýlegar framkvæmdir telja m.a.:
Gólfhita komið fyrir á neðri hæð í anddyri, holi, alrými, sólskála og baðherbergi.
Gólf neðri hæðar flotuð. Flísar settar á anddyri, baðherbergi og sólskála. Parket á hol og alrými.
Veggur milli eldhúss og hol felldur. Innrétting endurnýjuð sem og tæki eldhúss.
Innihurðar endurnýjaðar.
Járn á þaki endurnýjað, pappi og hluti klæðningar. Farið var í þessar framkvæmd á allri raðhúsalengjunni á sama tíma. Þakgluggar hússins voru endurnýjaðir á sama tíma.
Sólskáli endurnýjaður að hluta. Gólfihita komið fyrir og gler endurnýjað.Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og lögg. fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.