ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Snyrtilegt og vel við haldið einbýlishús í grónu og eftirsóttu hverfi á Selfossi.
Húsið er steypt, klætt að utan með lituðu járni, aluzink er á þaki.
Húsið hefur fengið gott viðhald undanfarin ár, en húsið var klætt að utan árið 2003, járn á þaki var endurnýjað árið 2014
Heildarstærð eignarinnar er 145,9m2 og er sérbyggður bílskúr 40,5m2 þar af.
Að innan skiptist húsið í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Forstofa er flísalögð og þar er lítill skápur.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísar eru á gólfi og veggjum en þar er sturta og snyrtileg innrétting.
Svefnherbergin eru 3, öll parketlögð og eru skápar í þeim öllum.
Þvottahúsi er rúmgott með inngangi af bílaplani, flísar eru á gólfi og þar er afstúkað búr.
Stofan er rúmgóð, parket er á gólfi en þar er hurð útá sólpall.
Eldhúsið er parketlagt en þar er snyrtleg eldri innrétting.
Bílskúr er mjög rúmgóður, málaður að innan en gluggar eru á annari langhliðinni sem hleypa birtu inn og bjóða uppá ýmsa nýtingarmöguleika.
Sólpallur með skjólveggjum er á baklóð hússins, innkeyrsla er steypt með munstursteypu og er snjóbræðsla í henni.
Lóðin er gróin og skjólgóð en baklóðin liggur að grónu leiksvæði.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.