ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og ný uppgerða 84,5fm, 4 herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvalir. Frábær staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur með m.a. Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðinni, Kaffi Vest, Ægisíðu ásamt skólum á öllum stigum í göngufjarlægð. Íbúðin skiptis... Sýna meira
ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og ný uppgerða 84,5fm, 4 herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvalir. Frábær staðsetning í Vesturbæ Reykjavíkur með m.a. Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðinni, Kaffi Vest, Ægisíðu ásamt skólum á öllum stigum í göngufjarlægð. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi með baðkari, rúmgott hol sem tengir flest rými eignar, rúmgóða stofu og þaðan útgengt út á svalir, eldhús með nýrri elshúsinnréttingu. Tvær geymslur í kjallara (ekki inni í fermetratölu).Áætlað fasteignamat fyrir árið 2024 skv. HMS er 65.850.000Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð með það í huga að nýr eigandi geti ráðið smáatriðum og útfærslum. Það sem hefur verið endurnýjað: nýjar hurðar og gerefti (að hluta), nýtt eikar harðparket, ný eldhúsinnrétting með eikarplötu, span helluborði og ofni frá Siemens ásmt háfi, rafmagn og tafla í íbúð endurnýjað, veggur milli eldhúss og baðherbergis endurbyggður og ýmis rör og lagnir endurnýjuð á baði, nýtt flísalagt baðherbergi með nýju baðkari, vaski, vaskaskáp og tækjum, nýr fataskápur í aðal svefnherbergi og nýr fataskápur á gangi, búið er að skipta um glugga á suðurhlið að hluta og framundan verður skipt um glugga á norðurhlið. Eignin er laus og getur verið til afhendingar við kaupsamning.Bókið skoðun hjá:Hreiðar Levý / Löggiltur fasteignasali / Sími: 661-6021 eða Valgeir Leifur / Aðstoðarmaður fasteignasala / Sími 780-2575 eða Eignin Hjarðarhagi 64 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 03-0302, fastnr. 202-8058 er skráð 84,5fm. Íbúðinni fylgja 2 sérgeymslur skráðar 0008 og 0011 og eru þær samtals 4,5fm. Þær eru ekki skráðar í birta fermetratölu í FMR.Framkvæmdir á húsi á síðustu árum:2011 til 2012 - Skólplagnir voru endurnýjaðar að stórum hluta.2018-2019 - Rafmagnstöflur í sameign var endurnýjaðar og þá voru settar upp hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Lagt var fyrir tveim tvöföldum stöðvum og ein sett upp. Stöðin er þjónustuð af Ísorku.2020 - Skipt um pappa og þakjárn sumarið og þá var einangrun yfir plötu í 62 og 64 endurnýjuð. Nánari Lýsing:Anddyri/gangur: Tengir saman öll rými íbúðar. Nýr fataskápur við gangs.Stofa: Rúmgóð og björt með stórum fallegum gluggum. Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.Eldhús: Ný eldhúsinnrétting með eikarplötu, span helluborði og ofni frá Siemens ásamt háfi. Tilbúið fyrir innbyggðan ísskáp og uppþvottavél.Svefnherbergi I: Rúmgott með eikar parketi og nýjum fatarskáp.Svefnherbergi II: Gott barnaherbergiSvefnherbergi III: Gott barnaherbergiBaðherbergi: Ný flísalagt baðherbergi með nýju baðkari, vaski, vaskaskáp og blöndunartækjum. Veggur milli eldhúss og baðherbergis endurbyggður og ýmis rör og lagnir endurnýjuð á baði.Þvottahús/Geymsla: Tengi er fyrir þvottavél inn í íbúðinni. Einnig mögulegt að setja upp fataskáp.Geymsla: Tvær geymslur í kjallara (ekki inni í fermetratölu).Garður: Stór sameiginlegur garður. Matjurtagarður og leiktæki í sameiginlegum garði.Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu.Bílastæði: Mörg bílastæði á bílaplani.Vel skipulögð 4. herbergja fjölskylduíbúð á vinsælum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Stutt í alla helstu þjónustu, s.s. skóla á öllum stigum, sundlaug, fallegar göngu- og hjólaleiðir við Ægissíðu, miðbæinn ofl. Nánari upplýsingar veita:Hreiðar Levý / Löggiltur fasteignasali / Sími: 661-6021 eða Valgeir Leifur / Aðstoðarmaður fasteignasala / Sími 780-2575 eða Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.