Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 111,1 fm, þar af íbúðarrými 106,4 fm og geymsla 4,7 fm, og skiptist í anddyri/hol, eldhús, borð- og setustofu með út... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er skráð 111,1 fm, þar af íbúðarrými 106,4 fm og geymsla 4,7 fm, og skiptist í anddyri/hol, eldhús, borð- og setustofu með útgengi á suður svalir, tvö svefnherbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi. Falleg og mikið endurnýjuð eign í 107 Reykjavík!*** OPIÐ HÚS NK. MÁNUDAG (12.09.2022) KL. 17:00 - 17:30. SKRÁNING HÉR ***Nánari lýsing:Anddyri: gengið upp snyrtilega teppalagða sameign og komið inn í rúmgóða parketlagða forstofu þar sem eru nýlegir skápar.Borð- og setustofa: eru í opnu og björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá borðstofu er útgengt á suður svalir þar sem njóta má útsýnis til austurs, suðurs og vesturs. Í stofu eru gluggar á þrjá vegu og einstakt útsýni m.a. út að Esju.Eldhús: var endurnýjað árið 2015 og þar er falleg hvít sérsmíðuð innrétting frá GKS með fallegri eyju, nýlegum spanhellum, háf, góðri vinnuaðstöðu, USB tenglum og rúmgóðum skúffum og hillum. Innrétting er með efri og neðri skápum, útdregnum hillum í hornskáp og sér skáp fyrir bökunartæki. Svefnherbergi: til móts við forstofu er parketlagt bjart svefnherbergi.Hjónaherbergi: til vinstri úr forstofu er komið inn á svefnherbergisgang þar sem hægra megin er rúmgott hjónaherbergi með glugga til austurs. Á gólfi er parket.Baðherbergi: til móts við hjónaherbergi er baðherbergi sem var endurnýjað og stækkað árið 2015. Þar eru ítalskar flísar frá Agli Árnasyni, hiti í gólfi, nýlegt baðkar, rúmgóð flísalögð sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn á vegg og falleg baðinnrétting með lýsingu undir skápum. Á jarðhæð er sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla íbúðar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Þá fylgir eign stór sameiginlegur garður þar sem eru leiktæki.Skv. seljanda voru allar raflagnir endurnýjaðar sem og rafmagnstafla í íbúð árið 2015 og árið 2018 var skipt um glugga og svalahurð.Frábær eign á vinsælum stað í Vesturbænum þar sem öll helsta þjónusta er í göngufæri, skólar, verslun sund, íþróttir og miðbærinn.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953,