Lind fasteignasala og Hannes Steindórsson kynna með stolti:Fallega og hlýlega fimm herbergja íbúð á annarri hæð við Hjarðarhaga 107 Reykjavík.Sérmerkt bílastæði á bílaplani. Fjögur stór svefnherbergi, rúmgott eldhús með borðkrók, baðherbergi og gestasalerni. Sterkt húsfélag,Fasteignamat um áramót 83... Sýna meira
Lind fasteignasala og Hannes Steindórsson kynna með stolti:Fallega og hlýlega fimm herbergja íbúð á annarri hæð við Hjarðarhaga 107 Reykjavík.Sérmerkt bílastæði á bílaplani. Fjögur stór svefnherbergi, rúmgott eldhús með borðkrók, baðherbergi og gestasalerni. Sterkt húsfélag,Fasteignamat um áramót 83.600.000 kr.60 fm sameiginlegt rými í kjallara, með líkamsræktartækjum, leikföngum, sófa ofl. Mikið notað.Sameiginlegt hjólaverkstæði einnig í kjallara með tækjum og tólum til að gera við. Íbúðin var endurnýjuð að innan árið 2018 á mjög smekklegan og vandaðan hátt. Eldhúsinnrétting og eldhústæki, baðherbergi alveg endurnýjað, vatnslagnir á baðherbergi, gestasalerni endurnýjað.Öll gólfefni, hurðar, veggir að hluta endurbyggðir, öll íbúðin máluð. Rafmagnstafla og tenglar, stigagangur tekinn í gegn, málaður og skipt um teppi.Að utan: Árið 2020 voru miklar framkvæmdir að utan: Húsið var múrviðgert og málað þar sem þurfti. Skipt um þak á hluta hússins sem var komin tími á.Skipt var um alla glugga á austurhlið hússins, skipt um affallsrennur, svalagólf máluð, skipt um útidyrahurðir á stigagöngum. Forstofa: Flísalögð forstofa með fatahengi.Gestasalerni: Flísalagt gestasalerni við forstofu.Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt svefnherbergi innaf forstofu. Eldhús: Stórt eldhús með hvítri innréttingu, miklu skápaplássi, vönduðum tækjum, innbyggðri uppþvottavél, spanhelluborði og háf.Rúmgóður borðkrókur í eldhúsi og stór gluggi.Stofa og borðstofa: Parketlagðar og bjartar samliggjandi stofur, með stórum gluggum og útgengi út á svalir. Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu og glerskilrúmi, hvítri innréttingu, skápum, tengi fyrir þvottavél og fallegri handlaug.Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.Svefnherbergi 3: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.Svefnherbergi 4: Stórt parketlagt hjónaherbergi með skápum.Geymslur: 9,7 fm sérgeymsla í kjallara með glugga, ásamt stórum læstum skáp í öðru rými í kjallara.Sameign: Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, 60 fm leikrými með líkamsræktartækjum, leikföngum og sófa. Sér rými með tækjum og tólum til hjólaviðgerða.Lóð: Rótgróin lóð með leiktækjum fyrir börn.Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008