215,4 m² stórt einbýlishús á þremur hæðum. Fjögur svefnherbergi, tvær stofur, borðstofa, stórt eldhús, baðherbergi, salerni, þvottahús, geymslur. Sólpallur, stór garður, hellulagt bílastæði, sérstæður 52 m² bílskúr.
Eiginleikar
Íbúð
Steinsteypt einbýlishús á þremur hæðum/pöllum. Sér inngangur að aftanverðu.
Stofa
Stór opin stofa á efsta palli með kamínu og harðparketi á gólfi. Frábært útsýni. Setustofa á neðsta palli.
Eldhús
Rúmgott eldhús opið að stofunni. Hvít innrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborð, uppþvottavél, ofn og combi ofn. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi
Fjögur svefnherbergi. Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp. Annað svefnherbergi með minni fataskáp. Þriðja herbergi tvískipt (var áður 2 herbergi). Svefnherbergisálma með útskot fyrir vinnu/tölvuaðstöðu. Rúmgott svefnherbergi á neðsta palli.
Baðherbergi
Baðherbergi endurnýjað 2019 með flísum á gólfi, sturtuklefa, baðkar, upphengt salerni og hvítri innréttingu.
Guest baðherbergi
Salerni í þvottahúsi.
Þvottahús
Stórt þvottahús með innréttingu og salerni.
Geymsla
Geymsla í þvottahúsi. Góð geymsla innst í bílskúr. Fataskápar í forstofu og hjónaherbergi. Búr með hillum inn af skrifstofuherbergi.
Bílskúr
Sérstæður bílskúr 52 m² með steystu gólfi, vinnubekk, hillur, inngönguhurð og eldri bílskúrshurð úr timbri með fjarstýrðum opnara.